Við brautskráningarathöfn Landbúnaðarháskólans voru veittir styrkir úr Framfarasjóði Ingibjargar Guðmundsdóttur og Þorvaldar Guðmundssonar í Síld og Fisk. Tilgangur sjóðsins er að styrkja nemendur Landbúnaðarháskóla Íslands til framhaldsmenntunar og að styrkja rannsóknir nemenda á fagsviði háskólans. Að þessu sinni eru tveir nemendur sem hljóta styrk, annar er í doktorsnámi og hinn í meistaranámi. Geirlaug Þorvaldsdóttir afhenti styrkina.
Erfðaleg aðlögun byggs að krefjandi umhverfisskilyrðum
Anna Guðrún Þórðardóttir hlýtur styrk frá Framfarasjóði til doktorsverkefnis síns sem ber titilinn: Erfðaleg aðlögun byggs að krefjandi umhverfisskilyrðum. Meginmarkmið verkefnisins er að stuðla að úrvali byggplantna sem eru aðlöguð kaldtempruðum umhverfisskilyrðum líkt og þekkjast á Íslandi. Þróuð verða tölfræðilíkön sem nýta arfgerðargreiningar byggyrkja, ættartölutengsl og veðurfarsgögn til að spá fyrir um kynbótagildi byggyrkja með sem nákvæmustum hætti, svo velja megi fyrir aukinni uppskeru að gæðum og magni við íslenskar aðstæður.
Anna Guðrún er stúdent frá Fjölbrautaskóla Suðurlands, lauk BSc prófi í búvísindum frá Landbúnaðarháskóla Íslands árið 2019 og tók þá til starfa sem búfræðikennari við Landbúnaðarháskóla Íslands. Árið 2023 lauk hún meistaranámi í búvísindum frá Landbúnaðarháskólanum og tók síðan til starfa sem aðjúnkt og námsbrautarstjóri. Á síðasta ári hóf hún síðan doktorsnám sitt við Landbúnaðarháskólann.

Uppruni íslenska byggsins, skyldleiki og erfðafræðileg þróun í aðlögun byggs að íslenskum umhverfisaðstæðum
Gunnhildur Gísladóttir hlýtur styrk frá Framfarasjóði til meistaraverkefnis síns: Uppruni íslenska byggsins, skyldleiki og erfðafræðileg þróun í aðlögun byggs að íslenskum umhverfisaðstæðum. Verkefnið snýr að því að skoða uppruna íslenska byggsins og hvernig það hefur erfðafræðilega aðlagað sig að íslenskum umhverfisaðstæðum. Með því að skoða stofnbyggingu og erfðablöndun er hægt leggja mat á uppruna íslenska stofnsins og hversu blandaður hann er við aðra stofna. Niðurstöður verkefnisins verður hægt að nota til að auka erfðaframfarir enn frekar sem skilar sér í meiri og betri uppskeru korns í ökrum bænda.
Gunnhildur útskrifaðist frá Fjölbrautaskóla Suðurlands 2014 og er búfræðingur frá Landbúnaðarháskóla Íslands 2019. Árið 2023 lauk hún BSc prófi í búvísindum frá Landbúnaðarháskóla Íslands og hóf meistaranám sitt við skólann í fyrra. Gunnhildur hefur á undanförnum misserum starfað við Landbúnaðarháskólann sem aðstoðarmaður í rannsóknum og við kennslu.

Við óskum styrkþegum innilega til hamingju!