Sumarafleysingar á tilraunabúið Hest
03.04.2024

Landbúnaðarháskóli Íslands óskar eftir starfsmanni í sumarafleysingar á tilraunabúið Hest sem er rannsóknarbú fyrir sauðfé.
Starfstímabilið er frá 1. júní til og með 31. ágúst 2024. Um er að ræða úti- og innistörf.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Jarðrækt
- Girðingarvinna
- Eftirlit og umhirða sauðfjár og þrif á fjárhúsum
- Heyskapur
- Önnur tilfallandi verkefni
Hæfniskröfur
- Búfræðipróf æskilegt
- Sjálfstæði og frumkvæði í starfi
- Samviskusemi og vandvirkni
- Dugnaður og framsækni
- Sveigjanleiki til að vinna breytilegan vinnutíma
- Bílpróf og vinnuvélaréttindi
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 26.04.2024
Nánari upplýsingar veitir
Logi Sigurðsson, [email protected]
Sími: 848 8668
Guðmunda Smáradóttir, [email protected]
Sími: 433 5000
Sækja um starf