Í tilefni af útgáfu nýrrar skýrslu hjá Landbúnaðarháskóla Íslands verður haldið rafrænt málþing miðvikudaginn 4. júní kl. 09:00–10:30 undir yfirskriftinni Svæðisbundinn stuðningur í íslenskum landbúnaði
Skýrslan, sem ber heitið Svæðisbundinn stuðningur í íslenskum landbúnaði, er afurð rannsóknarverkefnis sem unnið hefur verið fyrir Byggðarannsóknasjóð af þeim Jóhönnu Gísladóttur, Torfa Jóhannessyni og Tómasi H. Alexander. Hún verður gefin út sem rit LBHÍ og stefnt er að útgáfu hennar 3. júní.
Á málþinginu verður fjallað um byggðaþróun í dreifbýli og hlutverk landbúnaðar, bæði í Norrænu og íslensku samhengi. Fyrri hluti dagskrár verður á ensku þar sem sérfræðingar frá Norðurlöndunum halda erindi, og seinni hluti á íslensku þar sem efni skýrslunnar verður kynnt.
Dagskrá:
- Rural and Regional development in the Nordic countries
Karen Refsgaard, forstjóri LinkNordic - Regional Support to Agriculture in Norway
Arne Bardalen, sérfræðingur hjá Norwegian Institute of Bioeconomy Research - Svæðisbundinn stuðningur í íslenskum landbúnaði
Jóhanna Gísladóttir, lektor við LBHÍ
Torfi Jóhannesson, Nordic Insights
Málþingið fer fram á Teams og er öllum opið. Þátttaka er ókeypis og við bjóðum öllum sem hafa áhuga á byggðaþróun og landbúnaði að taka þátt.
Verkefnið er styrkt af Byggðarannsóknasjóði.