Á brautskráningu Landbúnaðarháskóla Íslands hinn 6. júní sl. var veitt viðurkenning fyrir félags- og kynningarstörf

Ingiberg Daði Kjartansson fékk viðurkenningu fyrir þátttöku í félags- og kynningarstörfum innan háskólans. Verðlaunin voru veitt í fyrsta skipti í ár og ráðgert að veita árlega hér eftir. Mynd Steinunn Þorvaldsdóttir

Þátttaka, frumkvæði og samfélagslegt framlag innan háskólans verðlaunað

Á brautskráningu Landbúnaðarháskóla Íslands hinn 6. júní sl. var veitt viðurkenning fyrir félags- og kynningarstörf. Ráðgert er að viðurkenningin verði veitt árlega.

Við þetta tækifæri sagði Ragnheiður I. Þórarinsdóttir, rektor Landbúnaðarháskólans: Á þessum mikilvæga degi þar sem við fögnum faglegum árangri útskriftarnema okkar vil ég staldra aðeins við og beina athyglinni að öðrum mikilvægum þætti háskólasamfélagsins – þeim þætti sem snýr að þátttöku, frumkvæði og samfélagslegu framlagi. Þættir sem eru ekki síður mikilvægir til að bæta gæðin og gera háskólann okkar enn betri. Í ár höfum við ákveðið að veita í fyrsta sinn, a.m.k. um langan tíma, sérstaka viðurkenningu til nemanda sem hefur lagt sitt af mörkum til að efla félagslíf, kynningu og ímynd Landbúnaðarháskóla Íslands – með eldmóði, skapandi hugsun og skýrum vilja til að gera gott samfélag enn betra. Þessi viðurkenning er ekki aðeins þakklætisvottur fyrir það sem þegar hefur verið gert – hún er einnig hvatning til framtíðar. Ætlunin er að gera þetta að árlegum viðburði þar sem við fögnum þeim sem hafa sýnt að áhrif nemenda ná langt út fyrir námsárangurinn.“

Fyrsti viðtakandi þessarar viðurkenningar er Ingiberg Daði Kjartansson, sem var að útskrifast sem búfræðingur, og hefur samhliða verið nemandi í búvísindum við Landbúnaðarháskólann. Ingiberg hefur verið formaður Nemendafélagsins, fulltrúi nemenda í háskólaráði, setið háskólafundi og tekið virkan þátt í stjórnun Landbúnaðarháskólans. Hann hefur verið afar virkur í öllu kynningarstarfi, sá sem stekkur af hestbaki í miðri sýningu til að sjá um að tölvukerfi og nettenging dómaranna virkar og svona mætti lengi telja. „Það hafa verið hrein forréttindi að starfa með Ingiberg þar sem fagleg nálgun hans, öll samskipti og metnaður fyrir Landbúnaðarháskólann hafa verið til fyrirmyndar. Kærar þakkir Ingiberg fyrir samstarfið. Ég veit að það mun annar nemandi taka sæti þitt í háskólaráði en ég veit að við munum áfram eiga þig að sem sterkan fulltrúa nemenda.“

logo

Þekking á sviði sjálfbærrar nýtingar auðlinda, umhverfis, skipulags og matvælaframleiðslu.

LBHÍ

Hvanneyri - 311 Borgarbyggð
Sími 433-5000
lbhi@lbhi.is
Kt. 411204-3590
Rafrænir reikningar
Image

Starfsstöðvar

Flýtileiðir

Samfélagsmiðlar

Image
Image