- Forsíða
- Fréttir
- Umhverfisbreytingar á norðurslóðum - mikilvægi margþátta lausna í samstarfi ólíkra aðila

Aðstæður á norðurslóðum breytast hraðar en annars staðar á jörðinni vegna hnattrænnar hlýnunar. Undanfarin misseri hefur umræðan orðið háværari þegar kemur að ítökum og auðlindanýtingu á þessu viðkvæma svæði. Vaxandi þörf er því fyrir sérfræðinga með þverfaglega menntun í umhverfisvísindum sem geta tekið þátt í umræðunni um auðlindanýtingu með málefnalegum og ópólitískum hætti.
Norrænt meistaranám í umhverfisbreytingum á norðurslóðum (e. Nordic Master in Environmental Changes at Higher Latitudes, EnCHiL) er tveggja ára meistaranám þar sem nemendur útskrifast með sameiginlega námsgráðu frá Landbúnaðarháskóla Íslands (LBHÍ) og Lundarháskóla í Svíþjóð (LU) eða Helsinkiháskóla í Finnlandi (UH). Námið er þverfaglegt þar sem nemendur fá aðgang að fjölbreyttum námskeiðum á þessu mikilvæga fræðasviði. Það nægir að hafa bakkalárpróf með 90 ECTS af námskeiðum í náttúruvísindum og tækni til að geta sótt um námið. Nemendur eru staðsettir erlendis að lágmarki í eitt misseri og fá mikilvæga verklega reynslu á ólíkum norðurslóðasvæðum. Alþjóðlegt og þverfaglegt samstarf innan EnCHiL undirbýr þannig nemendur til að takast á við umhverfisáskoranir á sem krefjast margþættra lausna í samstarfi ólíkra hagaðila.
Í EnCHiL-náminu afla nemendur sér þekkingar á málefnum tengdum landnýtingu með ýmsum hætti. Þegar nemendur eru allir saman komnir á Íslandi sækja þeir nokkur námskeið þar sem lögð er áhersla á samskipti við lykilaðila á sviði umhverfismála, þar á meðal bændur og fyrirtæki í sjávarútvegi og ferðaþjónustu. Ennfremur sækja nemendur önnur námskeið þar sem þeir kynnast hugtökum og aðferðum sem nýtast til frekari rannsókna og þróunar, til dæmis í námskeiðunum, „Environmental Governance“, „Tools in Environmental Sciences“, „Subarctic Soil Biology“ og „Air-sea exchange of greenhouse gases“ sem fram fer í Grænlandi, til að nefna nokkur.
Þeir nemendur sem sérstakan áhuga hafa á lífvísindum, umhverfivísindum, landbúnaðarvísindum, loftslagsvísindum eða til dæmis fjarkönnun og landfræðilegum upplýsingakerfum geta valið sér námskeið á þeim fræðasviðum við einhvern af sjö samstarfsháskólum EnCHiL og valið að skrifa meistararitgerð sína þar um það efni sem þeir vilja skoða nánar. Þannig gefst nemendum kostur á að leggja framhaldsnám sitt upp með þeim hætti að það passi sem best við áhugasvið þeirra.
Umsóknargátt EnCHiL, www.enchil.net, er opin frá 15. mars til 15. apríl fyrir umsóknir frá nemendum innan EES.
Nánari upplýsingar veita dr. Alejandro Salazar, brautarstjóri EnCHiL ([email protected]) og próf. Bjarni D. Sigurðsson, formaður stjórnar EnCHiL ([email protected]).