• Forsíða
  • Fréttir
  • UNIgreen býður upp í dans: Íslensk menningarhefð kynnt með söng og dansi.
UNIgreen býður upp í dans: Íslensk menningarhefð kynnt með söng og dansi.
29.10.2026
Mynd sem tengist textanum

Nemendafélag LBHÍ, alþjóðafulltrúi nemenda, UNIgreen og LBHÍ hafa tekið höndum (eða fótum) saman og byrjað að dansa undir heitinu „UNIgreen býður upp í dans“.

Markmið framtaksins er að hrista saman innlenda og erlenda nemendur með tónlist og dansi en á sama tíma rækta tengslin við íslenskar hefðir.

Fyrra þjóðdanskvöldið var haldið sl. mánudag og er stefnt að því að hafa að minnsta kosti eitt til viðbótar í hinu sögufræga Íþróttahúsi á Hvanneyri.

Skipuleggjendur fengu danskennara sem dansa með Þjóðdansafélaginu til að kenna íslenska þjóðdansa og - söngva og veittu þannig alþjóðlegum nemendum einstakt tækifæri til að kynnast íslenskum hefðum af eigin raun. Þjóðdansakvöldið vakti mikla ánægju meðal þátttakenda sem komu frá hinum ýmsu heimshornum með vináttu og samvinnu að leiðarljósi.

Næst verður dansað mánudaginn 2. nóvember og eru allir nemendur og starfsfólk hjartanlega velkomin til þátttöku.

Dansum saman, fögnum fjölbreytileikanum og byggjum brýr milli menningarheima!