
Í dag stóð LBHÍ fyrir UNIgreen Outreach Program þar sem nemendur og starfsfólk koma saman til að læra, ræða og taka þátt í hagnýtum aðgerðum í þágu sjálfbærni og skógræktar.
Dagurinn hófst á fræðsluerindi og umræðum um skógrækt á Íslandi, tækifæri hennar og mikilvægi fyrir náttúru, samfélag og loftslag. Að því loknu tók við verklegur hluti dagsins. Þátttakendur fengu hagnýta kynningu á gróðursetningu trjáa við íslenskar aðstæður og hófust síðan handa við að skapa nýjan skjólskóg rétt utan við aðalbyggingu skólans.
Saman gróðursettum við 1.000 tré á svæði sem búið var að skipuleggja undir útivistarskóg. Í byrjun er gróðursett birki, greni og alaskaösp. Á næsta ári verða síðan gróðursettar fjölbreyttar tegundir trjáa og runna. Með þessu verður til um hálfur hektari af fjölbreyttum útivistarskógi, sem mun nýtast nærsamfélaginu, efla fuglalíf á svæðinu og jafnframt binda kolefni.
Verkefnið er líka hluti af UNIgreen Ecological Footprint Compensation Programme, framtaki sem miðar að því að kolefnisjafna losun koltvísýrings sem verður til vegna þátttöku nemenda og starfsfólks í alþjóðlegum hreyfanleikaverkefnum innan UNIgreen samstarfsins.
Við viljum færa öllum þátttakendum innilegar þakkir fyrir framlag sitt. Sérstakar þakkir fá Dafnar, félag skógræktarnema, Land og Skógur fyrir samstarfi, Bjarni D. Sigurðsson, og Emmanuel Pagneux, sem studdi verkefnið með drónatækni sinni. Sú tækni mun í framtíðinni nýtast til að fylgjast með þróun lífmassa og vexti þessa nýja, litla UNIgreen-skógar.