UNIgreen - viðburðir í háskólanetinu á næstunni
14.04.2026

Eins og flestum er kunnugt þá er Landbúnaðarháskólinn aðili að háskólanetinu UNIgreen – The Green European University ásamt sjö öðrum háskólum. UNIgreen netið er ætlað að efla samvinnu um menntun, rannsóknir og nýsköpun sem og bættra ferla og miðlun þekkingar á sviði landbúnaðar, lífvísinda og líftækni.
Mikið og öflugt samstarf er innan UNIgreen og margt á dagskrá háskólanna sem saman standa að háskólanetinu. Mjög margir viðburðir eru opnir öllum og þátttakendum að kostnaðarlausu.
Viltu kynna þér hvað er á dagskránni á næstunni? Smelltu hér til að sjá hvað er á dagskránni eða kíktu á viðburðarsíðu UNIgreen.