Velkomin á nýnemadaga
14.08.2024
Velkomin á nýnemadag Landbúnaðarháskóla Ísalands

Nýnemadagar 2024 verða mánudaginn 19. ágúst og fara fram í Ásgarði, aðalbyggingu Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri. Dagskrá hefst stundvíslega kl 9:00 í Ársal á þriðju hæð. Mikilvægt er að mæta og fá allar upplýsingar um praktísk atriði í upphafi náms kynnast húsakynnum skólans og hitta starfsfólk og kennara ásamt því að kynnast stoðþjónustu skólans eins og bókasafni, nemendaráðgjöf og alþjóðasviði. Nánari dagskrá og upplýsingar er að finna í Uglu. Ef einhver vandamál koma upp er hægt að hafa samband við kennsluskrifstofu eða tölvuþjónustu. Einnig er hægt að hringja í síma 433 5000. Að byrja í námi - gott að vita.

Innilega velkomin í LBHÍ!