
Gleipnir, nýsköpunar- og þróunarsetur á Vesturlandi, óskar eftir að ráða verkefnastjóra með reynslu af ræktun og/eða vinnslu sjávarþörunga til að leiða alþjóðlegt verkefniMAB - Marine Algae Biorefinery, sem er styrkt af BlueActionAA.
MAB-verkefnið tengir saman sjálfbæra nýtingu og ræktun sjávarþörunga, vinnslu þeirra og vöruþróun ásamt verndun vistkerfa strandsvæða. Verkefnið er unnið í samstarfi við aðila á Íslandi, Írlandi og í Portúgal og miðar að því að efla staðbundna verðmætasköpun og þátttöku nærsamfélagsins. Megináhersla verkefnisins er á Stykkishólm og Snæfellsnes.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Stýra framkvæmd verkefnisins undir leiðsögn framkvæmdastjóra, samhæfa samstarfsaðila og hafa umsjón með verkáætlunum, fjárhagsáætlunum og skýrslugerð.
- Vinna með rannsóknar- og atvinnulífsaðilum að sjálfbærri ræktun, nýtingu og vinnslu sjávarþörunga ásamt vöruþróun.
- Byggja upp og viðhalda samstarfi við sveitarfélög, fyrirtæki og nærsamfélög og skipuleggja vinnustofur og fræðslu.
- Samhæfa upplýsingamiðlun, þekkingarmiðlun og eftirfylgni með árangri verkefnisins.
- Annast kynningar- og upplýsingastarf á samfélagsmiðlum og vefsíðu verkefnisins
- Samskipti við hagaðila.
- Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun á sviði sjávarvísinda, líftækni, umhverfisvísinda, náttúruauðlindastjórnunar eða skyldra greina, eða sambærileg starfsreynsla.
- Reynsla af verkefnastjórnun, þar á meðal samhæfingu samstarfsaðila, fjárhagslegri umsýslu og árangursríkri framkvæmd verkefna.
- Hagnýt eða tæknileg reynsla af ræktun og/eða vinnslu sjávarþörunga.
- Góð samskipta- og skipulagshæfni, sjálfstæði í vinnubrögðum og hæfni til að starfa þvert á faggreinar.
- Góð færni í ensku, bæði í ræðu og riti, og hæfni til að eiga árangursríkt samstarf við íslenska hagaðila. Reynsla af Evrópustyrktum verkefnum, samstarfi við nærsamfélög, upplýsingamiðlun á samfélagsmiðlum eða byggðaþróun er kostur.
Um starfið
Í boði er fjölbreytt og áhugavert starf þar sem alþjóðlegt samstarf, hagnýt nýsköpun og byggðaþróun fara saman. Verkefnastjóri starfar náið með framkvæmdastjóra Gleipnis og alþjóðlegum hópi samstarfsaðila úr rannsóknum, atvinnulífi og nærsamfélögum.
Ráðið er í starfið til tveggja ára í upphafi, með möguleika á framlengingu. Starfið felur í sér reglubundna viðveru og verkefnavinnu á Vesturlandi auk einhverra ferðalaga erlendis.
Starfsstöð: Hvanneyri eða Reykjavík
Upphaf starfs: 1. janúar 2027
Umsóknir, ásamt ferilskrá og stuttu kynningarbréfi, skulu berast til Alexanders Schepsky, framkvæmdastjóra Gleipnis, á netfangið alexander@gleipnirvest.is, eigi síðar en 27. nóvember 2026.
Á sama netfang má senda fyrirspurnir um starfið.