- Forsíða
- Rannsóknarverkefni
- Understanding diet composition and quality of tundra herbivores

Það er krefjandi að meta fæðuval grasbíta sem ganga lausir því hefðbundnar aðferðir felast í mikilli truflun og kostnaðarsömum sýnatökum. Saur dýranna býður uppá óbeinar en nokkuð áreiðanlegar rannsóknir á fæðusamsetningu fæðunnar (greining plöntuleyfa), lífeðlisfræði og vistfræði dýranna. Þróun nýlegra aðferða á borð við víðtækar DNA greiningar og litrófsmælingar á nær-innrauðu endurvarpi (NIRS) lofa góðu um hraðvirkni og nákvæmni við greiningu saursýna til ákvörðunar á samsetningu og næringargildi fæðu. Í TUNDRAdiet leggjum við til samhæfða notkun þessara nýju aðferða við ákvörðun á samsetningu og næringargildi fæðu grasbíta út frá saur dýranna víðs vegar í túndrunni (Ísland, Grænland, Noregur og víðar á norðurslóðum). TUNDRAdiet verkefnið mun veita nýjar upplýsingar um hvaða gangverk liggja að baki samlífi mismunandi tegunda grasbíta og hvaða áhrif þeir hafa á túndruvistkerfi. Við munum einnig þróa verfæri til ákvörðunar á fæðu grasbíta á auðveldan hátt auk þess að styðja við sjálfbæra landnýtingu og verndaraðgerðir í norðurslóðasvæði á tímum örra breytinga.
Mynd: Jennifer Forbey







