
Langar þig til að verða dýralæknir? Diplómanám við LBHÍ opnar þér beina leið í dýralæknanám við hinn virta SGGW-háskóla í Varsjá.
Í haust býður LBHÍ upp á nýja námsleið í búvísindum með áherslu á dýraheilbrigði. Um er að ræða tveggja ára diplómanám sem hefur það meginmarkmið að undirbúa nemendur til starfa og áframhaldandi náms á sviði búvísinda og dýraheilbrigðisvísinda. LBHÍ og Lífvísindaháskólinn í Varsjá í Póllandi (SGGW) hafa gert samning um þessa námsleið. Þegar nemendur hafa lokið diplómanáminu við LBHÍ geta þeir sótt um inngöngu á þriðja ár í dýralæknisfræði við SGGW. Upplýsingar um það nám má finna á vefsíðu SGGW.
"Við hjá Landbúnaðarháskóla Íslands erum mjög ánægð að geta boðið upp á þessa mikilvægu námsleið enda er margvíslegur ávinningur fyrir nemendur að fara þessa leið. Í fyrsta lagi má nefna að nemendur munu öðlast góða þekkingu á íslenskum landbúnaði á fyrstu tveimur árunum og munu búa að því að námi loknu. Í öðru lagi fá nemendur tækifæri til að stunda nám í góðum skóla í Póllandi með áhugaverðu og öflugu fagumhverfi. Í þriðja lagi er þetta góður kostur fyrir þau sem ekki treysta sér til eða hafa ekki tök á að fara beint til útlanda í langt nám.”, segir Auður Lilja Arnþórsdóttir, verkefnastjóri vegna undirbúning diplómanáms í búvísindum með áherslu á dýraheilbrigði hjá LBHÍ.
Nánari upplýsingar má finna á vefsíðu námsleiðarinnar, Diplóma í búvísindum með áherslu á dýraheilbrigði.