• Forsíða
  • Fréttir
  • (Ó)skipulag mótar líf okkar og umhverfi – en hvar eru skipulagsfræðingarnir?
(Ó)skipulag mótar líf okkar og umhverfi – en hvar eru skipulagsfræðingarnir?
20.04.2026
Mynd sem tengist textanum

Í nýjustu útgáfu Bændablaðsins birtist mjög áhugaverð grein eftir dr. Hörpu Stefánsdóttur prófessor í skipulagsfræði við LBHÍ og námsbrautarstjóra MS námsbrautar í skipulagsfræði.

Í grein sinni fer Harpa meðal annars yfir hvað skipulagsfræðin er og hvers vegna hún er lykilgrein fyrir sjálfbæra þróun Íslands. Einnig kemur fram í greininni að skortur sé á skipulagsfræðingum á Íslandi og því eigi menntaðir skipulagsfræðingar yfirleitt greiða leið inn á vinnumarkað.

Grein Hörpu er mikilvægt innlegg í umræðuna um skipulagsmál í stóru samhengi og greinina má finna á bls. 45 í Bændablaðinu.

Viltu kynna þér meistaranám í skipulagsfræði? Nánari upplýsingar má finna á vef LBHÍ.