English
Landbúnaðarháskóli Íslands | Hvanneyri | 311 Borgarnes | sími 433 5000 | fax 433 5001 | kt.411204-3590
Námskeið í tímaröð

Hross í hollri vist - Hvanneyri

13.3.2010

Námskeiðið er í boði fyrir hestamannafélög, hestamenn og annað áhugafólk um hesthúsbyggingar.

Lýsing: Á námskeiðinu er farið yfir skynjun og atferli hrossa með sérstaka áherslu á það hvernig hross skynja umhverfið í hesthúsi. Fjallað um mikilvægi réttrar hönnunar loftræstingar og skoðuð nokkur dæmi. Þá verður farið yfir með hvaða hætti hanna á og ganga frá gólfum í hesthúsum og jafnframt rætt um kosti og galla mismunandi undirburðar. Þá verður drjúgum tíma varið til þess að ræða um aðbúnað hrossa og annarrar aðstöðu í hesthúsinu, sem og í útigerði. Að síðustu verður kynning á hönnun lausagönguhesthúsa.

Umsjón og kennsla: Sigtryggur Veigar Herbertsson og Snorri Sigurðsson, sérfræðingar hjá LbhÍ.

Stund og staður: lau. 13. mars kl 9:30-17:00 (9 kennslustundir) í Ásgarði á Hvanneyri.

Verð: 14.500 kr (kennsla, gögn og veitingar).

Skráningar hjá Landbúnaðarháskóla Íslands á endurmenntun@lbhi.is eða í síma 433 5000
(fram komi nafn, kennitala, heimili og sími).

Staðfestingargjald: Staðfesta þarf skráningu með því að millifæra 5000 kr (óafturkræft) á reikninginn 0354-26-4237, kt. 411204-3590. Senda kvittun með skýringu á endurmenntun@lbhi.is . Minnum á stéttarfélags- og starfsmenntasjóði.

Til baka