Jafnréttisdagar standa yfir frá 3.-7. febrúar 2020.
Jafnréttisdagar tvinna saman hinar ýmsu víddir jafnréttis og femínisma og skoða fjölbreytileika, forréttindi, þöggun, jafnréttisbaráttu, vald og mismunun. Áhersla er lögð á þau tækifæri sem skapast með því að setja hugmyndir um normið – hið „eðlilega“ – og hið undirskipaða undir smásjána.
Dagskráin er fjölbreytt og byggir á þverfaglegu samstarfi þar sem gerð er tilraun til að sameina hátíðarbrag og gagnrýna sýn á stöðu jafnréttismála. Leitast er við að skapa opna umræðu og aukinn skilning á jafnrétti ásamt því að auka sýnileika jafnréttismála og virkja slagkraft þeirra fjölmörgu aðila sem vinna að jafnrétti.
Nánari dagskrá og viðburði er að finna á facebókar síðu dagana hér
Dagsetning:
mánudagur 3. febrúar 2020 til föstudagur 7. febrúar 2020