Áhersla er lögð á náttúru Íslands, áhrif mannsins á umhverfið, sjálfbæra nýtingu náttúrugæða og náttúruvernd. Markmið námsins er að útskrifa nemendur með góða undirstöðu í náttúrufræðum með sérþekkingu á íslenskri náttúru.
Áhersla er lögð á almennar undirstöðugreinar náttúrufræðinnar, vistfræði, grasafræði, jarðfræði og efnafræði auk grunnþekkingar í heimspeki. Sérstök áhersla er lögð á náttúru- og vistfræði Íslands. Valið er á milli tveggja lína, náttúrufræði annars vegar og náttúrunýtingar hins vegar. Í náttúrufræði er sérstök umfjöllun um jarðfræði, grasafræði og dýrafræði með áherslu á sérstöðu Íslands. Í náttúrunýtingu er áherslan á sjálfbæra nýtingu láðs og lagar, svo sem í land- og ferskvatnsnýtingu, beitar- og skipulagsfræði.
Námið er góð undirstaða undir allt framhaldsnám í náttúruvísindum. Það hentar vel fyrir margvísleg störf að umhverfismálum sem krefjast sérþekkingar á íslenskri náttúru, s.s. umsjón, stjórn og skipulag umhverfismála og landnýtingar, eftirlit og umsjón með náttúruverndarsvæðum og mat á umhverfisáhrifum. Einnig er námið kjörið fyrir kennslu í náttúrufræðum á grunn- og framhaldsskólastigi. Með aukinni ásókn í land og fjölbreyttari nýtingu þess er mikil þörf á fagfólki sem hefur víðtæka þekkingu á náttúru Íslands og sjálfbærri nýtingu hennar. Störf eru því jafnt hjá sveitarfélögum, opinberum stofnunum og fyrirtækjum sem fara með skipulagningu landnýtingar.
Í haust verður í fyrsta skipti boðið upp á tvær nýjar línur. Annars vegar Náttúra- og saga og hins vegar Þjóðgarðar og verndarsvæði.
Náttúra og saga Náttúru- og umhverfisfræði/náttúra – saga er námsbraut þar sem tvinnað er saman í BS-grunnnám raunvísindanámi annars vegar og hugvísindanámi hins vegar. Nemendur námsbrautarinnar taka 120 ECTS náttúrufræði sem aðalfag og 60 ECTS sagnfræði sem aukafag. Námsbrautin er samvinnuverkefni Landbúnaðarháskóla Íslands og Háskóla Íslands og veitir sameiginlega BS-gráðu frá þessum háskólum. Markmið námsbrautarinnar náttúru- og umhverfisfræði/ náttúra – saga er að veita nemendum almenna undirstöðuþekkingu á íslenskri náttúru annars vegar og almenna undirstöðuþekkingu á íslenskri sögu hins vegar til að gera nemendum kleift að skilja samspil manns og náttúru á Íslandi.
Þjóðgarðar og verndarsvæði Náttúru- og umhverfisfræði/þjóðgarðar – verndarsvæði er ný námsbraut við LbhÍ sem boðið er fyrst upp á haustið 2009. Markmiðið með námsbrautinni er að mennta fólk til starfa við ört stækkandi þjóðgarða og verndarsvæði hérlendis. Nemendur öðlast grunnþekkingu á íslenskri náttúru, náttúrufari og vistkerfum. Lögð er áhersla á þverfaglega nálgun og skilning á íslenskum náttúruauðlindum, sérstaklega með tilliti til nýtingar ferðaþjónustunnar. Á þriðja ári er áhersla á stjórnun og starfsemi þjóðgarða og verndarsvæða og móttöku ferðamanna á slíkum svæðum. Innan námsbrautarinnar eru 20 ECTS fyrir sérstakar valgreinar. Landgræðslufræði – Meistaranám M.S. Náttúra og umhverfi. Almenn náttúrufræði BS – 90 Náttúra- og umhverfisfræði – Meistaranám M.Sc Náttúra og umhverfi – Náttúrunýting BS – 90 Náttúra og umhverfi - Náttúra og saga BS - 90 Náttúra og umhverfi - Þjóðgarðar og verndarsvæði BS - 90 |
|

Nánari upplýsingar: Anna Guðrún Þórhallsdóttir, prófessor Sími : 433 5017 Farsími: 843 5337 Netfang : annagudrun@lbhi.is
|