English
Landbúnaðarháskóli Íslands | Hvanneyri | IS - 311 Borgarnes | sími 433 5000 | fax 433 5001 | kt.411204-3590
Fóðurjurtir í íslensku ræktunarlandi
Tilurð þessarar vefsíðu er verkefni sem nemendur í starfsmiðuðu meistaranámi við auðlindadeild LbhÍ unnu í námskeiði um fóðurræktun haustið 2007. Verkefnið fólst í því að gera eitt A4 blað fyrir hverja fóðurjurt sem mögulega finnst í íslensku ræktunarlandi. Á hverju blaði er stutt útlitslýsing ásamt kafla um nýtingu og uppskeruvæntingar og þar sem við á, kafli um ræktunaraðferðir. Síðurnar eru ríkulega myndskreyttar. Samtals er þetta 31 blað með 32 tegundum. Þetta eru bæði villtar og ræktaðar innfluttar tegundir. Listinn er ekki tæmandi enda eingöngu teknar fyrir tegundir af grasaætt, ertublómaætt og krossblómaætt. Vissulega stærstu og mikilvægustu ættkvíslir fóðurjurta en fyrir utan þær eru villtar tegundir í ræktunarlandi sem eiga heima í flokki með góðum fóðurjurtum en hafa þó ekki ræktunargildi. Tegundir eins og haugarfi, vallhumall, túnfífill, ætihvönn og ýmsar starir.
Á síðunum eru myndir úr myndasafni starfsmanna LbhÍ og myndir teknar af netinu. Reynt var að finna góðar teiknaðar útlitsmyndir af tegundunum og í flestum tilvikum tókst það. Annars var notast við ljósmyndir. Helsta uppspretta mynda af netinu voru síðurnar “Carl Axel Magnus Lindman: Bilder ur Nordens Flora (1901-1905)” og “USDA Plants Database” sem eru ómetanlegir gagnagrunnar fyrir svona verkefni ásamt frjálsri Wikipedia. Þessar heimildir sem og aðrar sem stuðst var við eru listaðar í sérstökum heimildarlista sem fylgir þessari síðu.

Höfundar eru Anna Lóa Sveinsdóttir, Guðfinna Harpa Árnadóttir, Helga María Hafþórsdóttir og Þóroddur Sveinsson.

Umsjón og ritstjórn; Þóroddur Sveinsson.

Fjölært sáðgresi

Villt fóðurgrös

Korn og grænfóður af grasaætt

Grænfóður af ertublómaætt

Grænfóður af krossblómaætt

Skrá  yfir þær heimildir sem notaðar voru við gerð verkefnisins.