Frá vinstri Ragnheiður I. Þórarinsdóttir rektor LbhÍ og Olga Lísa Garðarsdóttir skólameistari FSu við undirritunina á Selfossi

Frá vinstri Ragnheiður I. Þórarinsdóttir rektor LbhÍ og Olga Lísa Garðarsdóttir skólameistari FSu við undirritunina á Selfossi

Fjölbrautaskóli Suðurlands (FSu) og Landbúnaðarháskóli Íslands (LbhÍ) hafa gert með sér samning um sameiginlega náttúrufræðibraut og búfræði/garðyrkjusviði til stúdentsprófs. Nemendur taka fyrstu tvö árin við FSu og geta síðan hafið nám við LbhÍ í búfræði eða á garðyrkjubrautum skólans. Nemendur útskrifast síðan með sameiginlega gráðu sem stúdent og búfræðingur eða garðyrkjufræðingur. Vonir standa til þess að samstarfið muni draga að fleira ungt fólk í garðyrkjugreinarnar þar sem mikil tækifæri eru til sóknar. Allt að fimm nemendur árlega sem innritast á brautina eiga vísa skólavist í búfræði annars vegar og garðyrkju hinsvegar hjá LbhÍ eftir að hafa lokið þeim hluta námsins sem fram fer við FSu. 

Það er afar ánægjulegt að hefja formlegt samstarf við FSu um sameiginlega braut til stúdentsprófs og búfræðings / garðyrkjufræðings. Tækifæri innan landbúnaðar eru mikil og víða þörf á nýliðun. Það er því einkar gleðilegt að umsóknir í starfsmenntanám skólans hafa aldrei verið fleiri en í ár”, sagði Ragnheiður I. Þórarinsdóttir rektor LbhÍ við undirskrift samningsins. 

Landbúnaðarháskóli Íslands samþykkti nýja stefnu fyrir um ári síðan þar sem meðal annars er lögð áhersla á að efla verklegan þátt náms og starfsmenntanám skólans. Unnið hefur verið að uppbyggingu innviða skólans og að bæta tækjakost og annan aðbúnað fyrir starfsfólk og nemendur. Í sumar hafa verið miklar framkvæmdir á Reykjum í Ölfusi þar sem garðyrkjunámið fer fram.  Þá er áhersla lögð á vægi þverfaglegs náms, aukna samþættingu nýsköpunar, rannsókna og kennslu, samstarf við hagaðila og samlegðaráhrif á milli námsstiga með bættri nýtingu innviða. 

Olga Lísa Garðarsdóttir skólameistari FSu segir um samninginn að “Fjölbrautaskóli Suðurlands er staðsettur í einu stærsta landbúnaðarhéraði landsins og því er þessi samningur og námsfyrirkomulag afar heppilegt fyrir nemendur okkar sem hyggjast starfa við landbúnað, hvort sem um er að ræða búskap eða garðyrkju. Við erum afar ánægð að geta boðið þetta námsúrræði í FSu og hlökkum til að sjá viðbrögð samfélagsins á Suðurlandi við þessum möguleika.

 

logo

Þekking á sviði sjálfbærrar nýtingar auðlinda, umhverfis, skipulags og matvælaframleiðslu.

LBHÍ

Hvanneyri - 311 Borgarbyggð
Sími 433-5000
lbhi@lbhi.is
Kt. 411204-3590
Rafrænir reikningar
Image

Starfsstöðvar

Flýtileiðir

Samfélagsmiðlar

Image
Image