Leitað er eftir aðila í starf fjósameistara á Hvanneyrarbúinu

Störf í boði - Fjósameistari

Starf fjósameistara Hvanneyrarbúsins ehf við Landbúnaðarháskóla Íslands er nú laust til umsóknar.

Hlutverk Landbúnaðarháskólans er að skapa og miðla þekkingu á sjálfbærri nýtingu auðlinda, umhverfisskipulagi og landbúnaði á Norðurslóðum. Viðkomandi starfsmaður yrði hluti af teymi LbhÍ sem hefur umsjón með rekstri Hvanneyrarbúsins í samráði við bústjóra. Um fullt starf er að ræða.

Helstu verkefni

  • Umsjón og rekstur fjóssins á Hvanneyri
  • Fóðrun og dagleg umhirða gripa Umsjón ræktunarstefnu og hjarðskýrsluhalds
  • Almennt viðhald og viðgerðir véla og tækja
  • Jarðvinnsla og heyskapur
  • Leiðbeining nemenda í verklegu námi í búfræði og móttaka gesta Virk
  • þátttaka í uppbyggingu og innleiðingu nýsköpunar í búrekstri
  • Samstarf við teymi kennara og sérfræðinga Landbúnaðarháskóla Íslands við verklega kennslu og rannsóknir í nautgriparækt, jarðrækt, bútækni og umhverfismálum

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Búfræðipróf og/eða BS próf í búvísindum, auk annarrar menntunar sem nýtist í starfi
  • Reynsla af hirðingu búfjár og vélavinnu
  • Sjálfstæð vinnubrögð
  • Færni í mannlegum samskiptum
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Gott vald á talaðri og ritaðri íslensku og ensku

Umsóknarfrestur er til 15. mars 2022

Gert er ráð fyrir að umsækjandi hefji störf sem fyrst og helst eigi síðar en byrjun maí 2022.

Tilgangur Hvanneyrarbúsins ehf er að reka á hagkvæman hátt kúabú í þágu kennslu og rannsóknastarfs Landbúnaðarháskóla Íslands.

Nánari upplýsingar veita

  • Egill Gunnarsson, bústjóri Hvanneyrarbúsins, This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it., s. 848 2215
  • Guðmunda Smáradóttir, mannauðs- og gæðastjóri LBHÍ, This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it., s. 433 5000
logo

Þekking á sviði sjálfbærrar nýtingar auðlinda, umhverfis, skipulags og matvælaframleiðslu.

LBHÍ

Hvanneyri - 311 Borgarbyggð
Sími 433-5000
lbhi@lbhi.is
Kt. 411204-3590
Rafrænir reikningar
Image

Starfsstöðvar

Flýtileiðir

Samfélagsmiðlar

Image
Image