Auglýst eftir umsóknum í Nýsköpunarsjóð námsmanna

Markmið sjóðsins er að gefa háskólum, rannsóknarstofnunum og fyrirtækjum tækifæri til að ráða háskólanema í grunn- og meistaranámi í sumarvinnu við rannsóknar- og þróunarverkefni.

Styrkir verða veittir til rannsóknar- og þróunarverkefna sem líkleg þykja til að stuðla að nýsköpun og auknum tengslum háskóla, stofnana og fyrirtækja

Umsóknir um styrki eru metnar með hliðsjón af möguleikum til hagnýtingar í atvinnulífi og nýnæmi fyrir þekkingu í viðkomandi fræðigrein

Verkefnin skulu leyst af hendi með sjálfstæðri og faglegri vinnu námsmanns undir leiðsögn ábyrgðarmanna

Styrkir eru ekki veittir til lokaverkefna námsmanna

Úthlutun mun liggja fyrir í byrjun mars 2018

Hverjir geta sótt um?
Háskólanemar í grunn- og meistaranámi
Sérfræðingar innan fyrirtækja, stofnana og háskóla sem óska eftir að ráða háskólanema í sumarvinnu við rannsóknir

Sótt er um í gegnum rafrænt umsóknarkerfi Rannís. Nánari upplýsingar, reglur og leiðbeiningar eru að finna á síðu Nýsköpunarsjóðs námsmanna.

Umsóknarfrestur er til 5. febrúar 2018 kl.16.00.

logo

Þekking á sviði sjálfbærrar nýtingar auðlinda, umhverfis, skipulags og matvælaframleiðslu.

LBHÍ

Hvanneyri - 311 Borgarbyggð
Sími 433-5000
lbhi@lbhi.is
Kt. 411204-3590
Rafrænir reikningar
Image

Starfsstöðvar

Flýtileiðir

Samfélagsmiðlar

Image
Image