Dr. Björn Þorsteinsson skipaður rektor LbhÍ

Mennta- og menningarmálaráðherra hefur skipað Dr. Björn Þorsteinsson aðstoðarrektor kennslumála tímabundið sem rektor Landbúnaðarháskóla Íslands frá 1.ágúst nk. til 31. desember nk. Þessi skipan kemur í framhaldi af ákvörðun sem tekin var á fundi háskólaráðs LbhÍ sl. þriðjudag. En á þeim fundi var eftirfarandi samþykkt gerð:

„Skipunartíma núverandi rektors Landbúnaðarháskóla Íslands lýkur 31. júlí nk. Fyrir liggur að hann sækist ekki eftir endurráðningu á nýju skipunartímabili. Samkvæmt 1. mgr. 8. gr. laga um opinbera háskóla, nr. 85/2008, ber háskólaráði við þessar aðstæður að undirbúa tilnefningu nýs rektors. 

Háskóli Íslands

Í ljósi þessa leggur háskólaráð Landbúnaðarháskóla Íslands til við mennta- og menningarmálaráðherra að Dr. Björn Þorsteinsson aðstoðarrektor kennslumála verði með heimild í 24. gr. laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996, settur í embætti rektors til 31. desember nk. Háskólaráðið mun þegar hefja undirbúning að tilnefningu nýs rektors Landbúnaðarháskóla Íslands sem ráðherra skipar til fimm ára frá og með 1. janúar 2015. Háskólaráð hefur ákveðið að starfið verði auglýst opinberlega.

Háskólaráð hefur skipað sérstaka undirbúningsnefnd sem í sitja Sigríður Hallgrímsdóttir, Bjarni Stefánsson og Hilmar Janusson sem mun undirbúa ráðningarferlið. Gert er ráð fyrir að auglýsa starfið í byrjun september. Stefnt er að því að niðurstaða um ráðningu nýs rektors liggi fyrir í desember.“

Þessi ákvörðun er fagnaðarefni fyrir starfsemi LbhÍ og Birni fylgja árnaðaróskir.

logo

Þekking á sviði sjálfbærrar nýtingar auðlinda, umhverfis, skipulags og matvælaframleiðslu.

LBHÍ

Hvanneyri - 311 Borgarbyggð
Sími 433-5000
lbhi@lbhi.is
Kt. 411204-3590
Rafrænir reikningar
Image

Starfsstöðvar

Flýtileiðir

Samfélagsmiðlar

Image
Image