Dr. Sæmundur Sveinsson settur rektor LbhÍ

Að fenginni tillögu háskólaráðs Landbúnaðarháskóla Íslands hefur Kristján Þór Júlíusson mennta- og menningarmálaráðherra sett dr. Sæmund Sveinsson í stöðu rektors LbhÍ til eins árs frá og með 1. október 2017. Hann tekur við sem rektor af Dr. Birni Þorsteinssyni.

Á árunum 2010 til 2014 var Sæmundur aðstoðarkennari við grasafræðideild háskólans í Bresku Kólumbíu í Vancouver í Kanada. Eftir að hann lauk doktorsnámi hefur hann starfað sem sérfræðingur við auðlindadeild Landbúnaðarháskóla Íslands og unnið m.a. við byggrannsóknir í samnorrænu PPP (Public Private Partnership) verkefni, sem snýst um að bera saman norrænar kynbótalínur af byggi og kanna erfðafræðilegan fjölbreytileika þeirra - einkum með tilliti til eiginleika sem hafa áhrif á sjúkdómsþol og flýti. Einnig hefur hann kennt í Háskóla Íslands, Landgræðsluskóla Háskóla Sameinuðu þjóðanna og Landbúnaðarháskólann. Hann hefur setið í erfðanefnd landbúnaðarins fyrir hönd Landbúnaðarháskóla Íslands frá árinu 2015.

Sæmundur útskrifaðist með BS próf frá líffræðideild Háskóla Íslands í júní 2007. Hann lauk mastersprófi frá sömu deild sumarið 2009. Leiðbeinandi Sæmundar á mastersstigi var Dr. Kesara Anamthawat-Jónsson. Í mastersnámi kannaði Sæmundur skyldleika ýmissa meltegunda (Leymus) með frumuerfðafræðilegum aðferðum.

Hann varði doktorsritgerð sína frá grasafræðideild háskólans í Bresku Kólumbíu í Vancouver í Kanada (www.botany.ubc.ca) árið 2014. Doktorsritgerð Sæmundar ber titilinn: “Investigations of plant genome evolution using massive parallel sequencing”, en á íslensku nefnist hún „Þróun plöntuerfðamengja könnuð með næstu kynslóðar raðgreingartækni".

Ritstjórn heimasíðu LbhÍ óskar Sæmundi velfarnaðar í starfi og þakkar jafnframt fráfarandi rektor, Birni Þorsteinssyni, fyrir störf sín.

 

logo

Þekking á sviði sjálfbærrar nýtingar auðlinda, umhverfis, skipulags og matvælaframleiðslu.

LBHÍ

Hvanneyri - 311 Borgarbyggð
Sími 433-5000
lbhi@lbhi.is
Kt. 411204-3590
Rafrænir reikningar
Image

Starfsstöðvar

Flýtileiðir

Samfélagsmiðlar

Image
Image