Fulltrúar Landbúnaðarháskóla Íslands sækja í þessari viku UNIgreen fundi og ráðstefnu í Coimbra, Portúgal. Þar koma saman fulltrúar samstarfsháskólanna innan UNIgreen til að fara yfir stöðu verkefna og samræma næstu skref í sameiginlegu starfi á sviði menntunar, rannsókna og samfélagslegra áskorana.
Á General Assembly fundi var Ragnheiður I. Þórarinsdóttir kjörin formaður UNIgreen General Assembly og Salvatore Anzalone, rektor University College of the Province of Liege, varaformaður.
Jafnframt mættu fulltrúar tveggja nýrra háskóla sem bætast við í nýrri umsókn um framhald UNIgreen samstarfsins. Annars vegar er það Centria University of Applied Sciences frá Finnland og hins vegar Weihenstephan-Triesdorf University of Applied Sciences frá Þýskaland. Þannig tóku fulltrúar 10 evrópskra háskóla þátt í fundinum í Coimbra og kynntu áherslur sínar og væntingar til áframhaldandi samstarfs.
Dagskráin fól jafnframt í sér samráðsfundi milli vinnupakka um áframhaldandi og aukið samstarf um kennslu, rannsóknir og nýsköpun, og tengsl við samfélag og atvinnulíf.





