Hlutverk háskólanna í grænu umbyltingunni – Málstofa Landbúnaðarháskóla Íslands og Sjálfbærnistofnun HÍ

Hlutverk háskólanna í grænu umbreytingunni – málþing

Landbúnaðarháskóli Íslands og Sjálfbærnistofnun Háskóla Íslands hafa leitt saman krafta sína og bjóða ykkur velkomin á málþing þann 21. febrúar næstkomandi um hlutverk háskólanna í grænu umbreytingunni.

 

Háskólastofnanir leika lykilhlutverk í að leiða þarfar samfélagsbreytingar og hafa því ríkum skyldum að gegna í grænu umbreytingunni. Hvert er hlutverk háskólanna í grænu umbreytingunni? Hvernig geta háskólar tekist á við þessar áskoranir? Hvernig er hægt að styðja við rannsóknir, kennslu og tryggja örugga fjármögnun? Þessum spurningum og fleirum verður leitast við að svara á málþinginu.

 
Málþingið fer fram í sal Þjóðminjasafnsins, Suðurgötu 41, frá kl. 10:30 - 12:00. Boðið verður upp á veitingar að málþingi loknu.
 

Dagskrá:

Opnunarávarp frá Jón Atla Benediktssyni, rektor Háskóla Íslands og formanns samstarfsnefndar háskólastigsins
Erindi frá Brynhildi Davíðsdóttur, varaformanni Loftslagsráðs og prófessor í umhverfis- og auðlindafræði um grænu umbreytinguna
Jóhanna Gísladóttir, lektor við Landbúnaðarháskóla Íslands kynnir evrópska samstarfsverkefnið U-GREEN
Panell að loknum erindum þar sem sitja munu meðal annars Halldór Jónsson, sviðstjóri vísinda og nýsköpunarsviðs Háskóla Íslands, Brynhildur Bjarnadóttir, dósent við Háskólann á Akureyri og Dagmar Óladóttir, varaforseti Stúdentaráðs Háskóla Íslands.
 
Fundarstjóri á málþinginu verður Hafdís Hanna Ægisdóttir, forstöðumaður Sjálfbærnistofnunar Háskóla Íslands.
 
Hlökkum til að sjá sem flesta.
 
Viðburðurinn er haldin með stuðningi frá Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins
 
logo

Þekking á sviði sjálfbærrar nýtingar auðlinda, umhverfis, skipulags og matvælaframleiðslu.

LBHÍ

Hvanneyri - 311 Borgarbyggð
Sími 433-5000
lbhi@lbhi.is
Kt. 411204-3590
Rafrænir reikningar
Image

Starfsstöðvar

Flýtileiðir

Samfélagsmiðlar

Image
Image