"Húsgagnagerð úr skógarefni" haldið í tuttugusta og fimmta sinn

Image
Image
Image

Hið sívinsæla námskeið "Húsgagnagerð úr skógarefni" var haldið um helgina í skemmu Skógræktarfélags Árnesinga á Snæfoksstöðum af Lbhí og Skógræktinni. 

Námskeiðið er haldið í samvinnu við Iðan fræðslusetur ehf sem styður félagsmenn sína úr m.a. iðngreinum til þátttöku í ýmsum námskeiðum, meðal annars þessu námskeiði. Á námskeiðunum er unnið eftir gömlum aðferðum við samsetningu húsgagna þar sem bæði er notaður þurr og blautur viður. Þátttakendur æfa fyrstu skrefin með gerð lítilla frummynda og setja síðan saman tréhamar (kjullu) út greni og úlfareyni, koll úr ösp og sitkagreni og einfaldan bekk úr greni. Kúnstin er síðan að koma í veg fyrir of snögga þurrkun svo fínu húsgögnin springi ekki út og suður.

Í 11 manna hópi þátttakenda voru  m.a. smiðir, iðjuþjálfar, skógræktarfólk og skrifstofufólk á blönduðum aldri.  Frá árinu 2010 hafa verið haldin 25 námskeið sem þetta með 314 þátttakendum. 

Um næstu helgi verður boðið upp á framhaldsnámskeið í húsgagnagerð á sama stað þar sem flóknari smíði fer fram m.a. gerð bekkjar með baki og samsetning á greinahaldara sem er mikilvægur fyrir þá sem stunda grisjun og skógarnytjar.

logo

Þekking á sviði sjálfbærrar nýtingar auðlinda, umhverfis, skipulags og matvælaframleiðslu.

LBHÍ

Hvanneyri - 311 Borgarbyggð
Sími 433-5000
lbhi@lbhi.is
Kt. 411204-3590
Rafrænir reikningar
Image

Starfsstöðvar

Flýtileiðir

Samfélagsmiðlar

Image
Image