Hvernig viltu hafa kjötið þitt?-Opinn fundur á Hvanneyri 24. nóvember

Landbúnaðarháskóli Íslands og Bændasamtök Íslands bjóða til opins fundar á Hvanneyri föstudaginn 24. nóvember kl. 14:00 - 16:30 í Ásgarði.

Þann 14. nóvember síðastliðinn úrskurðaði EFTA dómstóllinn að íslenskum yfirvöldum væri óheimilt að banna innflutning á fersku kjöti, eggjum og afurðum úr ógerilsneyddri mjólk frá Evrópu til Íslands. Ljóst er að þessi dómur mun hafa veruleg áhrif á íslenskan landbúnað.  Jafnframt er mikilvægt að umræða um þetta mál byggist á faglegum grunni.  Því boða LbhÍ og BÍ til opins fundar til að fjalla um niðurstöður dómsins og hugsanleg áhrif hans. Fundurinn er öllum opinn á meðan húsrúm leyfir.  Boðið verður upp á kaffi í fundarhléi.

Hvernig viltu hafa kjötið þitt?  - Dagskrá

14:00 – 14:10    Setning – Sæmundur Sveinsson rektor LbhÍ

14:10 – 14:30    Innflutningur á ferskum landbúnaðarafurðum til Íslands – staðan og horfur - Sigurður Eyþórsson, framkvæmdastjóri BÍ

14:30 – 14:50    Innflutningseftirlit – hlutverk MAST og mismunur á eftirliti eftir uppruna innflutnings – Þorvaldur H. Þórðarson, framkvæmdastjóri inn- og útflutningsmála hjá MAST 

14: 50 - 15:05 Felst áhætta í innflutningi ferskra landbúnaðarafurða? - Ólafur Valsson, dýralæknir

15:05 – 15:20 Kaffihlé

15:20 – 15:40 Smitsjúkdómar sem geta borist með innfluttum ferskum landbúnaðarafurðum – Vilhjálmur Svansson dýralæknir á Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræðum á Keldum

15:40 – 16:00    Lýðheilsa – áhrif á heilbrigði manna og dýra – Karl G. Kristinsson yfirlæknir  Sýklafræðideildar Landspítalans

16:00 – 16:30    Umræður og fyrirspurnir

Fundarstjóri er Charlotta Oddsdóttur, dýralæknir og lektor við LbhÍ.

Facebook viðburður

logo

Þekking á sviði sjálfbærrar nýtingar auðlinda, umhverfis, skipulags og matvælaframleiðslu.

LBHÍ

Hvanneyri - 311 Borgarbyggð
Sími 433-5000
lbhi@lbhi.is
Kt. 411204-3590
Rafrænir reikningar
Image

Starfsstöðvar

Flýtileiðir

Samfélagsmiðlar

Image
Image