Íbúðalánasjóður styrkir háskólanema um land allt sem rannsaka vilja húsnæðismál

Íbúðalánasjóður hyggst úthluta styrkjum til meistara- og doktorsnema sem vilja stunda rannsóknir á húsnæðismálum við alla sjö háskólana á Íslandi. Rektorar háskólanna, ráðherra húsnæðismála og forstjóri Íbúðalánasjóðs hafa undirritað viljayfirlýsingu þess efnis. Allt að 15 meistara- og doktorsnemar við alla sjö háskólana á Íslandi fá að hámarki 1 millj. kr. í styrk á ár

Verulegur vandi hefur skapast á húsnæðismarkaðnum hér á landi síðustu misseri og eitt af því sem talið er geta komið í veg fyrir að svipað neyðarástand skapist að nýju er efling rannsókna tengdum húsnæðismálum.  

Töluverðum upphæðum verður varið til verkefnisins. Veittir verða allt að 15 styrkir á ári og getur hver og einn numið að hámarki 1 milljón kr. Með veitingu styrkjanna er vonast til að fjölga verkefnum og rannsóknum á sviði húsnæðismála sem geta eflt íslenskan húsnæðismarkað og stuðlað að auknu jafnvægi á honum.  

Ásmundur Einar Daðason, félags- og jafnréttismálaráðherra: „Það er full þörf á að rannsaka húsnæðismarkaðinn. Ég bind vonir við að styrkirnir nýtist nemendum allra íslensku háskólanna vel og að þeir verði duglegir að sækja um þá. Með auknu samstarfi á milli Íbúðalánasjóðs og fræðasamfélagsins verður vonandi hægt að stuðla að því að sem flestir íbúar landsins geti búið við húsnæðisöryggi og að meira jafnvægi komist á húsnæðismarkaðinn. Við þurfum á því að halda sem fyrst.“ 
Fríða Björk Ingvarsdóttir, rektor Listaháskóla Íslands: „Ég tel mjög mikilvægt skref að styrkja betur við rannsóknir á húsnæðismarkaðnum. Húsnæðisskorturinn og hátt verð húsnæðis kallar á að við leitum hagkvæmari leiða til að reisa húsnæði. Loftslagsbreytingar kalla á að við hugum að sjálfbærni og breyttar kröfur nýrra kynslóða, sem haga lífi sínu á annan hátt en við sem eldri erum, kalla ef til vill á að við horfum á húsnæði með aðeins öðrum augum en hingað til. Starfsfólk og nemendur við hönnunar- og arkitektadeild LHÍ eru að kljást við allar þessar spurningar og vonandi mun samstarfið við Íbúðalánasjóð verða til þess að ný þekking skili sér fyrr í formi lausna sem gagnast munu fólki á húsnæðismarkaði.” 

 

Myndin er fengin af vef Íbúðalánasjóðs. Efri röð: Auður Magnúsdóttir, deildarforseti Landbúnaðarháskóla Íslands, Erna Björk Örnólfsdóttir, rektor Háskólans á Hólum, Eyjólfur Guðmundsson, rektor Háskólans á Akureyri, Jóhanna Vigdís Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri tengsla hjá Háskólanum í Reykjavík, Fríða Björk Ingvarsdóttir, rektor Listaháskóla Íslands og Vilhjálmur Egilsson, rektor Háskólans á Bifröst.
Neðri röð: Hermann Jónasson, forstjóri Íbúðalánasjóðs, Ásmundur Einar Daðason, ráðherra húsnæðismála, Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands

logo

Þekking á sviði sjálfbærrar nýtingar auðlinda, umhverfis, skipulags og matvælaframleiðslu.

LBHÍ

Hvanneyri - 311 Borgarbyggð
Sími 433-5000
lbhi@lbhi.is
Kt. 411204-3590
Rafrænir reikningar
Image

Starfsstöðvar

Flýtileiðir

Samfélagsmiðlar

Image
Image