Samningur um kynbætur á byggi, hveiti og höfrum til ræktunar á Íslandi

Kynbætur á byggi, hveiti og höfrum

Matvælaráðuneytið hefur undirritað samkomulag við Landbúnaðarháskóla Íslands (Lbhí) um framkvæmd verkefnis vegna kynbóta á byggi, hveiti og höfrum til ræktunar á Íslandi.

Verkefnið er fyrsta sinnar tegundar á Íslandi en ekki hefur verið unnið að kynbótum áður á hveiti og höfrum hérlendis. Nýjustu aðferðum við kynbætur í nytjaplöntum, sem ekki hefur verið nýtt hérlendis áður, er beitt í verkefninu. Þær aðferðir hraða mjög kynbótum og skila fyrr árangri. Verkefni um kynbætur á byggi hófst í apríl 2023 sem byggir á tillögu úr skýrslunni Bleikum ökrum sem LbhÍ vann um um eflingu kornræktar og kom út í mars sama ár. Hlé hefur verið á kynbótastarfi á byggi um nokkurt skeið en verulegt starf var unnið á árum áður undir forystu Þorsteins Tómassonar og Jónatans Hermannssonar.

Verkefnið markar nýtt upphaf kornkynbóta á Íslandi. Helsta markmið verkefnisins er að þróa og kynbæta yrki byggs, , hafra og hveitis löguð að íslenskum aðstæðum. Annað markmið er að byggja upp hæfni og getu í plöntukynbótum og plöntuerfðafræði á Íslandi.

Gert er ráð fyrir að framlengja samkomulagið árlega til eins árs í senn fram til ársloka 2028. Niðurstöður tilrauna verða gefnar út fyrir bændur, ráðgjafa og sáðvöruinnflytjendur.

Tilkynning birtist á vef stjórnarráðsins

logo

Þekking á sviði sjálfbærrar nýtingar auðlinda, umhverfis, skipulags og matvælaframleiðslu.

LBHÍ

Hvanneyri - 311 Borgarbyggð
Sími 433-5000
lbhi@lbhi.is
Kt. 411204-3590
Rafrænir reikningar
Image

Starfsstöðvar

Flýtileiðir

Samfélagsmiðlar

Image
Image