Laus staða: Deildarfulltrúi á kennsluskrifstofu LBHÍ

Landbúnaðarháskóli Íslands óskar eftir því að ráða deildarfulltrúa á kennsluskrifstofu skólans. Um er að ræða fullt starf.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Þjónusta og upplýsingagjöf til nemenda og kennara

  • Samræming og samþætting kennslu í samvinnu við kennara

  • Samstarf við utanaðkomandi aðila er tengjast kennslu og leiðbeiningu lokaverkefna

  • Vinna við ýmis kerfi og gagnagrunna sem tengjast nemendabókhaldi, upplýsingamiðlun, framkvæmd kennslu, prófa og útskrift nemenda

  • Önnur tilfallandi verkefni

Hæfniskröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi

  • Haldgóð reynsla af verkefnastjórnun og upplýsingamiðlun

  • Reynsla og þekking á notkun upplýsingakerfa og gagnagrunna

  • Góð samskiptahæfni

  • Góð kunnátta í ritaðri og talaðri íslensku sem og ensku

  • Heiðarleiki og nákvæmni í vinnubrögðum

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 06.01.2026

Nánari upplýsingar veitir

Jón Grétar Sigurjónsson

Tölvupóstur: This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.

Sími: 433 5000

Guðmunda Smáradóttir

Tölvupóstur: This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.

Sími: 433 5000

 
logo

Þekking á sviði sjálfbærrar nýtingar auðlinda, umhverfis, skipulags og matvælaframleiðslu.

LBHÍ

Hvanneyri - 311 Borgarbyggð
Sími 433-5000
lbhi@lbhi.is
Kt. 411204-3590
Rafrænir reikningar
Image

Starfsstöðvar

Flýtileiðir

Samfélagsmiðlar

Image
Image