Laust er til umsóknar starf sérfræðings í tölvuþjónustu á rekstrarsviði Landbúnaðarháskóla Íslands. Um er að ræða fjölbreytt og áhugavert starf fyrir öflugan og áhugasaman einstakling.
Helstu verkefni og ábyrgð
-
Stefnumótun tæknimála
-
Samningsgerð við birgja og innkaup á tæknibúnaði
-
Umsjón með leyfismálum og tæknibúnaði
-
Uppsetning og rekstur netþjóna (Linux og Windows, staðar- og víðnet)
-
Ábyrgð á afritunartöku, rekstri eldveggs, þráðlaus nets
-
Viðhald og rekstur á fjarfundabúnaði, hljóðkerfum og upptökubúnaði
-
Tæknileg ráðgjöf og útfærsla tæknilegra lausna
-
Umsjón með tæknilegum þáttum s.s. hurða -og prentkerfi
-
Uppsetning, aðstoð og kennsla á hugbúnað sem notaður er við Landbúnaðarháskóla Íslands
-
Almenn þjónusta við starfsfólk og nemendur
-
Önnur tilfallandi verkefni
Hæfniskröfur
-
Háskólamenntun sem nýtist í starfi
-
Haldgóð reynsla af stjórnun tölvu- og netkerfa æskileg
-
Sérþekking á kerfisrekstri og upplýsingatækni
-
Reynsla af rekstri skýjaumhverfis
-
Góð þekking á Windows stýrikerfi og þjóna umsjón
-
Góð þekking á rekstri staðarnets með Cisco og UniFi búnaði
-
Rík vitund um upplýsingaöryggi
-
Sjálfstæð og fagleg vinnubrögð
-
Færni í mannlegum samskiptum
-
Gott vald á talaðri og ritaðri íslensku og ensku
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 06.02.2026
Nánari upplýsingar veitir
Kristín Theodóra Ragnarsdóttir
Tölvupóstur:
Sími: 433 5000
Guðmunda Smáradóttir
Tölvupóstur:
Sími: 433 5000





