Leiðir til að auka kolefnisbindingu á Íslandi

Í síðustu viku var haldin fjölsótt ráðstefna í Bændahöllinni um leiðir til þess að auka kolefnisbindingu á Íslandi. LbhÍ var meðal aðstandanda ráðstefnunnar og hélt Auður Magnúsdóttir, deildarforseti auðlinda- og umhverfisdeildar LbhÍ, erindi um losun gróðurhúsalofttegunda vegna landnotkunar á Íslandi. Þá fjallaði Oddný Steina Valsdóttir, formaður Landsamtaka sauðfjárbænda, sauðfjárbændur og kolefnisbindingu. Jóhann Þórsson, sérfræðingur hjá Landgræðslu ríkisins, fjallaði um kolefnisbindingu með Landgræðslu, og Arnór Snorrason, sérfræðingur á Mógilsá, fjallaði um kolefnisbindingu með skógrækt.

Fyrstur í pontu var Eugene Hendrick en hann er írskur sérfræðingur um kolefnisbindingu og sagði hann frá reynslu Íra við að binda kolefni á Írlandi. Hægt er að lesa viðtal við hann í nýjasta  Bændablaði.

Upptökur af öllum erindum eru nú aðgengilegar á vefnum.

logo

Þekking á sviði sjálfbærrar nýtingar auðlinda, umhverfis, skipulags og matvælaframleiðslu.

LBHÍ

Hvanneyri - 311 Borgarbyggð
Sími 433-5000
lbhi@lbhi.is
Kt. 411204-3590
Rafrænir reikningar
Image

Starfsstöðvar

Flýtileiðir

Samfélagsmiðlar

Image
Image