Við leitum að lektor i plöntukynbótafræði við Landbúnaðarháskóla Íslands

Lektor í plöntukynbótafræði

Laust er til umsóknar starf lektors í plöntukynbótafræði við Landbúnaðarháskóla Íslands. Staðan er innan deildar Ræktunnar og fæðu sem hefur það að aðalmarkmiði að deila, varðveita og dýpka þekkingu á sviði jarðræktar og búfjárfræða. Enn fremur er leitast við að efla nýsköpun í gegnum rannsóknir og kennslu. Viðfangsefni deildarinnar eru þverfagleg og blandast þar saman líffræðilegir, tæknilegir, efnahagslegir og samfélagslegir þættir sem tengjast landbúnaðarframleiðslu og áhrifum hennar á umhverfið og samfélagið í heild.

English version

Starfið felur í sér vinnu við kornkynbótaverkefni og mun viðkomandi m.a. sjá um erfðamengjamat fyrir bygg. Þróa þarf kornkynbótaverkefnið áfram og taka inn hveiti og hafra ásamt því að sinna vísindarannsóknum sem eru nauðsynlegar til að ná árangri í kynbótastarfinu og styðja við það.

 

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Uppbygging alþjóðlega viðurkenndra rannsókna á sviði erfðafræði og erfðamengja til að þróa bætt afbrigði korns
  • Uppbygging á nýrri kynbótaáætlun fyrir vetrarhveiti og hafra
  • Birting ritrýndra vísindagreina, öflun rannsóknarstyrkja og virk þátttaka í alþjóðlegu og innlendu samstarfi
  • Kennsla og þróun námskeiða á grunn- og framhaldsstigi
  • Leiðbeining nemenda í rannsóknaverkefnum
  • Virk þátttaka í faglegu þróunarstarfi og uppbyggingu innan skólans

 

Hæfniskröfur

  • Doktorspróf í kynbótafræðum eða skyldum greinum
  • Reynsla af rannsóknum og störfum sem tengjast ræktun á nytjaplöntum
  • Reynsla af þátttöku í rannsóknarverkefnum og öflun rannsóknarstyrkja.
  • Umsækjandi hafi birt rannsóknir sínar á viðurkenndum alþjóðlegum vettvangi og hafi skýra framtíðarsýn á kennsluháttum, rannsóknum og þróun fræðasviðsins.
  • Geta til að vinna sjálfstætt og sem hluti af hóp
  • Samstarfshæfni og lipurð í samskiptum
  • Mjög góð enskukunnátta, íslenskukunnátta æskileg

 

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert. Umsækjendur skulu láta fylgja umsókn sinni vottorð um námsferil sinn og störf, ritaskrá, skýrslu um vísindastörf og önnur störf sem þeir hafa unnið, kynningarbréf þar sem m.a. koma fram upplýsingar um rannsóknaráherslur og hugmyndir um kennsluaðferðir/þróun þekkingarmiðlunar á sviðinu.

Athygli er vakin á því að samkvæmt reglum LbhÍ er rektor heimilt að veita framgang í starf dósents eða prófessors strax við nýráðningu ef umsækjandi uppfyllir viðkomandi hæfnisviðmið. Landbúnaðarháskóli Íslands áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. 

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 08.03.2024

 

Nánari upplýsingar

  • Erla Sturludóttir, This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. Sími: 4335000
  • Guðmunda Smáradóttir, This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. Sími: 4335000

Sækja um starf

logo

Þekking á sviði sjálfbærrar nýtingar auðlinda, umhverfis, skipulags og matvælaframleiðslu.

LBHÍ

Hvanneyri - 311 Borgarbyggð
Sími 433-5000
lbhi@lbhi.is
Kt. 411204-3590
Rafrænir reikningar
Image

Starfsstöðvar

Flýtileiðir

Samfélagsmiðlar

Image
Image