
Birki í menningu, listum og lífinu er málþing sem verður haldið í Norræna húsinu föstudaginn 29. ágúst. Viðburðurinn hefst klukkan 13:00 og er aðgangur opinn öllum.
Málþingið er haldið á vegum rannsóknarverkefnisins BirkiVist: Endurheimt birkivistkerfa á 21. öld og þar verða m.a. kynntar niðurstöður þess hluta verkefnisins sem snýr að samfélagslegu, menningarlegu og fagurferðilegu gildi birkis.
Markmið málþingsins er að fjalla um gildi og hlutverk birkis í íslenskri menningu og listum. Meðal fyrirlesara eru Ása L. Aradóttir, sem mun fjalla um endurheimt birkiskóga i samhengi við plöntublindu og myndlist, og Jónína S. Þorláksdóttir og Ingólfur Pétursson, sem varpa upp hugleiðingum um virði birkisins fyrr og nú, og hvernig ólík upplifun getur haft áhrif á möguleika til verndar og endurheimtar birkis.
BirkiVist er samstarfsverkefni HÍ LbhÍ, LHÍ og Lands og skógar. Sjá nánar: https://birkivist.is/
Boðið verður upp á veitingar í kaffihléi og öll eru hjartanlega velkomin.
Dagskrá:
13.00 - 13.15 Kristín Svavarsdóttir: BirkiVist og endurheimt birkivistkerfa13.15 - 13.45 Guðbjörg R. Jóhannesdóttir og Edda R.H. Waage - Fagurferðilegt gildi birkiskóga13.45 - 14.15 Sólrún Una Þorláksdóttir: Þar sem birkið og fjalldrapinn grær: Að eiga sér dvalarstað í íslenskum birkiskógi14.15 - 14.30 Hildur Hákonardóttir - Hvað varð af birkimenningu okkar?14.30 - 14.45 Unndór Egill Jónsson - Birki sem efniviður14.45 - 15.00 Rúna Thors: Tilraunastofa - Birki: Námskeið í vöruhönnun
15-15.20 Hlé
15.20 - 15.50 Ása L. Aradóttir: Að sjá eða sjá ekki: Hugleiðing um endurheimt birkiskóga, plöntublindu og myndlist15.50 - 16.20 Auður Aðalsteinsdóttir - Skógar og birki í íslenskum bókmenntum16.20 - 16.50 Jónína S. Þorláksdóttir og Ingólfur Pétursson: Virði Birkis fyrr og nú: áhrif ólíkrar upplifunar á möguleika til endurheimtar.
Nánar um viðburðinn: https://fb.me/e/8Mkd1uitX