Á aðalfundi var Karl Vernharð fjósameistari kvaddur eftir farsælt starf. Ragnheiður I. Þórarinsdóttir t.v. og Egill Gunnarsson bústjóri t.h.

Metinnlegg Hvanneyrarbúsins og gróska í rannsóknastarfi

Hvanneyrarbúið ehf. hélt aðalfund um miðjan mars. Tilgangur félagsins er að reka á hagkvæman hátt kúabú á Hvanneyri í þágu kennslu og rannsóknastarfs Landbúnaðarháskóla Íslands.

Farið var yfir ársreikning félagsins 2021 og farið almennt yfir rekstur og stöðu félagins. Rekstur félagsins gekk með ágætum og skilaði búið metinnleggi eða 560 þúsund lítra. Þá má einnig nefna að mikil gróska sé í rannsóknastarfi um þessar mundir og til framtíðar. Breytingar eru nú í rekstri félagsins en Karl Vernharð Þorleifsson fjósameistari lætur í vor eftir tveggja ára farsælt starf. Af tilefninu var Karli veitt viðurkenning og þakkir fyrir vel unnin störf ásamt árnaðaróskum um gæfu og gott gengi í þeim verkefnum sem hann tekur að sér í framtíðinni.

Í stjórn félagsins sitja Ragnheiður I Þórarinsdóttir rektor, Baldur Helgi Benjamínsson búerfðafræðingur og bóndi á Ytri-Tjörn og Pétur Diðriksson bóndi á Helgavatni. Bústjóri er Egill Gunnarsson. Fundargerðir félagsins má finna hér.

logo

Þekking á sviði sjálfbærrar nýtingar auðlinda, umhverfis, skipulags og matvælaframleiðslu.

LBHÍ

Hvanneyri - 311 Borgarbyggð
Sími 433-5000
lbhi@lbhi.is
Kt. 411204-3590
Rafrænir reikningar
Image

Starfsstöðvar

Flýtileiðir

Samfélagsmiðlar

Image
Image