Ný grein í IAS: Möguleg áhrif útbreiðslu lúpínu á samfélög frjóbera á Íslandi

Ný grein er komin út í alþjóðleg vísindaritsins Icelandic Agricultural Sciences. Þetta er stuttgrein og á íslensku mundi hún nefnast Möguleg áhrif útbreiðslu lúpínu á samfélög frjóbera á Íslandi. Höfundar eru Jonathan Willow, Mariana Tamayo og Magnús H. Jóhannsson.

Athugunin var gerð í Heiðmörk sumarið 2015 á svæði sem einkennist af mósaík af innlendu skóglendi, mólendi og þéttum lúpínubreiðum. Frjóberandi skordýr sem sáust voru m.a. af hunangsfluguætt, hármýsætt, svarmfluguætt, húsafluguætt, sveifflugur (randaflugur) og bjöllur. Rannsóknin leiddi í ljós að marktækt fleiri einstaklingar af þessum sex algengustu ættum frjóberandi skordýra fundust á innlendum gróðri en í lúpínubreiðunum í Heiðmörk. Þetta er einföld athugun en höfundar álykta að lúpínan bjóði upp á verra búsvæði fyrir frjóberandi skordýr í íslenskri náttúru en innlendu gróðurhverfin.

logo

Þekking á sviði sjálfbærrar nýtingar auðlinda, umhverfis, skipulags og matvælaframleiðslu.

LBHÍ

Hvanneyri - 311 Borgarbyggð
Sími 433-5000
lbhi@lbhi.is
Kt. 411204-3590
Rafrænir reikningar
Image

Starfsstöðvar

Flýtileiðir

Samfélagsmiðlar

Image
Image