Nýtt rit LbhÍ: Áburðargjöf í lífrænni ræktun á Íslandi – 2014

Skýrslan Áburðargjöf í lífrænni ræktun á Íslandi – 2014 er komin út. Rannsóknarverkefnið var unnið í samvinnu við bændur í lífrænni ræktun. Verkefnisstjóri var Christina Stadler.

Fram til þessa hafa grænmetisbændur í lífrænni ræktun einkum notað sveppamassa (1,9% N) til áburðargjafar. Nú hefur verið bannað að nota sveppamassa í lífrænni ræktun vegna þess að hann inniheldur hænsnaskít úr hefðbundinni hænsnarækt. Það er því brýn þörf á því að finna aðra áburðargjafa sem uppfylla næringarþörf plantna og má jafnframt nota í lífrænni ræktun.

Molta úr búfjáráburði (1,9% N), leifar frá fiskiðnaði (fiskimjöl, 10,9% N) og innfluttur verksmiðjuframleiddur áburður (216 mg N/l) var prófað í gróðurhúsatilraun með tómötum (yrki 'Dirk'). Plöntur voru ræktaðar með 49,25 cm bili milli plantna í röðinni og 2,5 plöntur / m². Borið var á 30 cm breitt svæði, alls 250 kg N / ha skipt í fimm (5 × 50) yfir vaxtatímabilið, sem var sjö mánuðir. Uppskera af tómötum var mæld og jarðvegssýni tekin reglulega og nítrat-N mælt.

Vegna mikils N framboðs í jarðvegi úr gróðurhúsi var ekki marktækur munur milli áburðarliða í tómatauppskeru og jafnvel ekki í samanburði við liðinn án áburðar. Heldur meiri uppskera fékkst eftir notkun á Pioner complete 6-1-3® en þó var ekki marktækur munur. Almennt var uppskeran lág. Ástæða þess var líklega mun minni náttúruleg sólarinngeislun á öllu vaxtartímabilinu samanborið við önnur ár. Áburður hafði veruleg áhrif á nítrat í jarðvegi. Það jók nítrat í jarðveginum að hræra í efsta laginu nokkrum sinnum (t.d. við áburðurgjöf) yfir vaxtatímabilið og ætti því að vera hluti af betri áburðurstjórnun.

Þegar einungis er verið að skoða verð fyrir eitt kg af N, virðist sveppamassi vera ódýr áburður. Hins vegar, þegar athuguð er N nýting, eru bæði fiskimjöl og Pioner complete 6-1-3® jafnvel ódýrari en sveppamassi. Að taka fleiri ár í reikninginn myndi líklega leiða í ljós svipað verð fyrir allar áburðartegundirnar, því að sveppamassi gefur ekki aðeins nítrat á áburðargjafarárinu.

Bann við notkun sveppamassa ætti í raun ekki hafa áhrif á lífræna ræktun grænmetis þar sem til staðar er að minnsta kosti jafn góður áburður (molta úr búfjáráburði) eða jafnvel betri áburður (t.d. fiskimjöl) á svipuðu verði á markaði.

Nákvæmari niðurstöður er að finna í lokaskýrslunni. Skýrslan er nr. 57 í ritröðinni Rit LbhÍ. 

logo

Þekking á sviði sjálfbærrar nýtingar auðlinda, umhverfis, skipulags og matvælaframleiðslu.

LBHÍ

Hvanneyri - 311 Borgarbyggð
Sími 433-5000
lbhi@lbhi.is
Kt. 411204-3590
Rafrænir reikningar
Image

Starfsstöðvar

Flýtileiðir

Samfélagsmiðlar

Image
Image