Starf við LbhÍ: Búfræðikennari

Landbúnaðarháskóli Íslands óskar eftir að ráða til starfa kennara við starfs- og endurmenntunardeild skólans.  Starfið felst í bóklegri og verklegri kennslu við búfræðibraut skólans á Hvanneyri.  Um er að ræða 100% starf. Gert er ráð fyrir að viðkomandi hefji störf þann 1. ágúst næstkomandi.  Laun eru samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags og fjármálaráðherra.

  • Umsækjendur hafi búfræðipróf og háskólapróf í búvísindum eða sambærilega menntun.
  • Æskilegt er að viðkomandi hafi hagnýta reynslu og þekkingu á ýmsum sviðum landbúnaðar, svo sem í jarðræktargreinum og áhuga á framþróun í greininni.
  • Áhersla er lögð á vandvirkni, skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Leitað er eftir einstaklingi sem er góður í að miðla þekkingu og lipur í mannlegum samskiptum.

Umsóknarfrestur er til 1. júní 2017. Umsóknir sendist til Kristínar Siemsen,This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it., Landbúnaðarháskóla Íslands, Hvanneyri, 311 Borgarnes.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. 

Nánari upplýsingar um starfið veitir Guðríður Helgadóttir, forstöðumaður starfs-og endurmenntunardeildar, í gsm 843 5314.

logo

Þekking á sviði sjálfbærrar nýtingar auðlinda, umhverfis, skipulags og matvælaframleiðslu.

LBHÍ

Hvanneyri - 311 Borgarbyggð
Sími 433-5000
lbhi@lbhi.is
Kt. 411204-3590
Rafrænir reikningar
Image

Starfsstöðvar

Flýtileiðir

Samfélagsmiðlar

Image
Image