Landbúnaðarháskóli Íslands (LBHÍ) auglýsir tímabundið sumarstarf aðstoðarmanns í verkefninu Peatland LIFEline.
Peatland LIFEline er metnaðarfullt, fimm ára verkefni styrkt af LIFE-áætlun Evrópusambandsins. Markmið þess er að endurheimta láglendiseldfjallamýrar á Íslandi og efla getu stofnana til verndunar líffræðilegs fjölbreytileika á endurheimtum votlendissvæðum. Að lokinni endurheimt verður lögð áhersla á markvissa vöktun á áhrifum aðgerða á einstök íslensk votlendisvistkerfi, með mælingum á lífrænum þáttum (plöntum, mosum, flóum, fuglum og fiskum) og ólífrænum þáttum (jarðvegi, lofttegundum og vatni), með það að markmiði að tryggja langtíma vernd og yfirfærslugildi aðferða.
Sumarstarf hjá Peatland LIFEline veitir tækifæri til að öðlast reynslu af umfangsmikilli endurheimt votlendis og verkefnastjórnun, en verkefnið er stærsta vistheimtarverkefni á Íslandi sem hlotið hefur styrk frá Evrópusambandinu. Starfsmaðurinn mun starfa með verkefnastjóra og í samstarfi við verkefnateymi, auk þess að eiga regluleg samskipti við sérfræðinga og vísindamenn á sviði votlendisendurheimtar og landnýtingar. Gert er ráð fyrir að starfsmaður taki virkan þátt í umræðum innan verkefnisins.
///
The Agricultural University of Iceland (AUI) is advertising a temporary summer position as an assistant for the project Peatland LIFEline.
Peatland LIFEline is an ambitious 5 year-long project funded by the LIFE Programme of the European Union to restore lowland volcanic peatlands in Iceland and strengthen institutional biodiversity conservation capacity in restored wetland areas. Once restored, the goal is to carefully monitor the impact on the unique Icelandic wetland ecosystems through the monitoring of biotic (plants, mosses, fens, birds and fish) and abiotic (soil, gaz, water) criterias and ensure long-term replication and conservation.
Working for Peatland LIFEline is an opportunity to gain hands-on experience on large-scale wetland restoration and project management as Peatland LIFEline is the largest project dedicated to ecological restoration funded by the EU in Iceland. The employee will be working directly under the project manager and the project team and will be regularly exchanging with experts and scientists in the field of wetland restoration and land-use.
The employee is expected to take full part in the project discussions.
Helstu verkefni og ábyrgð
-
Aðstoð við miðlun verkefna sem og fræðslu- og kynningarstarf
-
Aðstoð við söfnun og úrvinnslu landfræðilegra gagna (GIS), undir leiðsögn sérfræðinga
-
Aðstoð við undirbúning framkvæmda við endurheimt mýrlendis, undir leiðsögn sérfræðinga
-
Þátttaka í vöktunarverkefnum á vettvangi, m.a. í grasafræði, fuglafræði o.fl. undir leiðsögn sérfræðinga
-
Aðstoð við stjórnsýslu og umsýslu verkefnisins eftir þörfum
-
Önnur tilfallandi verkefni
///
-
Assistance with project results communication and public engagement activities
-
Help with geographical data collection and processing, under the supervision of the relevant experts
-
Help with preparation work for peatland restoration, under the supervision of the relevant experts
-
Monitoring fieldwork opportunities in botany, bird life, and more (depending on the applicant¿s field of interest), under the supervision of the relevant experts
-
Punctual help with administrative management
-
Other duties as required
Hæfniskröfur
-
Háskólamenntun við hæfi. Menntun á sviði náttúru- eða umhverfisvísinda, eða sambærileg menntun er æskileg
-
Menntun og/eða reynsla af söfnun og úrvinnslu gagna í landupplýsingakerfum (GIS) er æskileg
-
Góð tölvu- og upplýsingatæknikunnátta
-
Frumkvæði, sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð
-
Góð samskipta- og samstarfshæfni
-
Góð enskukunnátta er skilyrði; íslenskukunnátta er kostur
-
Ökuréttindi er skilyrði
///
-
A university degree in a relevant field. Education in nature/environmental sciences is preferred
-
Education and/or experience in Geographical Information System (GIS) data collection and data processing is preferred
-
Good computer and IT skills
-
Applicants must show initiative and proactivity as well as independence and autonomy in their work
-
Good communication and relational skills
-
English is required; Icelandic is a plus
-
Driving license mandatory
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Starfið er staðsett á Hvanneyri og mun meginhluti vinnunnar fara þar fram. Unnið verður í samstarfi við helstu samstarfsaðila verkefnisins, þar á meðal Náttúrufræðistofnun Íslands, Land og skóg, Fuglavernd og Náttúruverndarstofnun.
Ráðningartímabil er frá 1. júní til 31. ágúst 2026, með möguleika á framlengingu fram í byrjun september eftir samkomulagi.
///
The position is based in Hvanneyri and most work activities will happen in the area. The employee will work locally in collaboration with the project¿s partners such as the Nature Science Institute of Iceland, Land and Forest Iceland, but some work activities might also involve BirdLife Iceland and the Nature Conservation Agency of Iceland.
The employment period is between June 1st to August 31st, 2026, but more days in the beginning of September are welcome.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 09.03.2026
Nánari upplýsingar veitir
Eyjólfur Guðmundsson
Deildarforseti
Tölvupóstur:
Sími: 433 5000
Guðmunda Smáradóttir
Mannauðs- og gæðastjóri
Tölvupóstur:
Sími: 433 5000





