Tíu milljónir frá Minjastofnun í flutning Landbúnaðarsafns Íslands

Minjastofnun Íslands hefur í samráði við forsætisráðuneytið ákveðið að ráðast í átaksverkefni sem felur í sér atvinnuskapandi friðunarverkefni um land allt. Heildarumfang átaksins er 205 milljónir króna á þessu ári og koma 15 milljónir af upphæðinni á Vesturland til tveggja verkefna. Fimm milljónum króna er varið í að gera við kútter Sigurfara sem er geymdur í Byggðasafninu í Görðum. Þá verður tíu milljónum króna varið í flutning Landbúnaðarsafnsins á Hvanneyri en sem kunnugt er hefur LbhÍ umsjón með safninu. Þessar vikurnar er einmitt verið að búa Halldórsfjós á Hvanneyri undir flutning Landbúnaðarsafnsins þangað.

Landbúnaðarsafn Íslands á Hvanneyri er rekið sem sjálfseignarstofnun. Hlutverk þess er að gera skil sögu og þróun íslensks landbúnaðar með því að varðveita gögn, gripi og aðrar minjar um hana, sem og annast rannsóknir og fræðslu um viðfangsefnið. Bjarni Guðmundssonverkefnisstjóri Landbúnaðarsafnsins sagðist vera þakklátur bæði Minjastofnun og forsætisráðuneytinu fyrir stuðninginn. Hann væri að vonast til að þessi styrkur sem og stuðningur ýmissa aðila innan héraðs og utan dygði til að færa safnið milli húsa. Bjarni sagði að safnið hafi verið rekið um tíðina með aflafé án þess að stofna til skulda. Þar hefði til að mynda reynst drjúg ritlaun sem útgáfa þriggja bóka hefði gefið um búnaðar- og verkháttasögu á 20. öldinni. „Þá hefur Bændaskólinn og síðan Landbúnaðarháskólinn verið safninu ómetanlegur bakhjarl í 74 ára sögu þess,“ sagði Bjarni í samtali við Skessuhorn. Þessa dagana eru iðnaðarmenn við vinnu í safninu, en hér má sjá Pétur Jónsson trésmiðameistara á Hvanneyri í sýningarsal safnsins sem er óðum að taka á sig mynd.
 

Mörg áhugaverð verkefni

Minjastofnun Íslands er stjórnsýslustofnun sem annast framkvæmd minjavörslu í samræmi við ákvæði laga. Hlutverk stofnunarinnar er meðal annars að ákveða ráðstöfun fjár úr fornminjasjóði og húsafriðunarsjóði í samráði við húsafriðunarnefnd og fornminjanefnd. ,,Það er sérlega ánægjulegt að geta ráðist í átaksverkefni sem þetta. Það er von mín að þetta geti orðið til þess að ýta undir vitundarvakningu meðal almennings og áhuga á friðun og verndun gamalla húsa auk þess sem það nýtist til atvinnusköpunar. Við sjáum mörg og áhugaverð verkefni á Vesturlandi og ánægjulegt að geta hrint verkefninu af stað þar með jafn afgerandi hætti,“ segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra. Með lögum um menningarminjar var komið á nýju skipulagi í stjórnsýslu menningarminja. Hin nýja stofnun sem varð til 1. janúar 2013 tók við hlutverki stofnanana Forleifaverndar ríkisins og Húsafriðunarnefndar sem voru frá sama tíma lagðar niður. Minjastofnun Íslands tók við hlutverki þessara stofnana og hefur yfirumsjón með heildarstefnu um verndun og varðveislu menningarminja ásamt umsýslu tveggja sjóða; forminjasjóðs og húsafriðunarsjóðs.

logo

Þekking á sviði sjálfbærrar nýtingar auðlinda, umhverfis, skipulags og matvælaframleiðslu.

LBHÍ

Hvanneyri - 311 Borgarbyggð
Sími 433-5000
lbhi@lbhi.is
Kt. 411204-3590
Rafrænir reikningar
Image

Starfsstöðvar

Flýtileiðir

Samfélagsmiðlar

Image
Image