Tvær lausar stöður við Auðlinda- og umhverfisdeild LbhÍ

Starf lektors í búvísindum við Auðlinda- og umhverfisdeild Landbúnaðarháskóla Íslands

Laust er til umsóknar 100% starf lektors í búvísindum með áherslu á búfjárrækt við Auðlinda- og umhverfisdeild Landbúnaðarháskóla Íslands. Starfið felur í sér skyldur sem lúta að rannsóknum, kennslu og stjórnun í Auðlinda- og umhverfisdeild.

Lektor er ætlað að byggja upp alþjóðlega viðurkenndar rannsóknir á sérsviði sínu, birta ritrýndar vísindagreinar, afla rannsóknarstyrkja og taka virkan þátt í bæði alþjóðlegum sem innlendum verkefnum og samstarfi.  Ennfremur að kenna í námskeiðum á grunn- og framhaldsstigi og leiðbeina nemendum í rannsóknaverkefnum, auk þess að taka virkan þátt í störfum deildar. Lektor hefur jafnframt tækifæri til að þróa námskeið og kennslu í grunn- og framhaldsnámi.

Menntunar- og hæfniskröfur:
• Samstarfshæfni og lipurð í samskiptum er algjört skilyrði og ætlast er til að umsækjandi sýni fram á þessa færni í umsóknarferlinu.
• Doktorspróf í búvísindum, dýralækningum eða skyldum greinum.
• Góð grunnþekking og reynsla af rannsóknum á líffræði eða ræktun búfjár.
• Þekking á landbúnaði á norðlægum slóðum er æskileg.
• Reynsla af rannsóknum á sviði kynbótafræði eða atferlis og aðbúnaðar búfjár er kostur.
• Reynsla og þekking á virðisaukningu landbúnaðarafurða í gegnum nýsköpun er kostur.
• Umsækjandi hafi kynnt rannsóknir sínar á viðurkenndum vettvangi og hafi skýra framtíðarsýn í þeim efnum. 
• Reynsla af kennslu og geta og vilji til þess að þróa nýjar aðferðir til þekkingarmiðlunar á fræðasviðinu.
• Æskilegt er að umsækjandi hafi átt aðild að rannsóknarverkefnum og öflun rannsóknastyrkja í samvinnu við aðra.
• Stjórnunarreynsla og íslenskukunnátta er æskileg.

 

Starf lektors í búvísindum við Auðlinda- og umhverfisdeild Landbúnaðarháskóla Íslands

Laust er til umsóknar 100% starf lektors í búvísindum við Auðlinda- og umhverfisdeild Landbúnaðarháskóla Íslands. Starfið felur í sér skyldur sem lúta að rannsóknum og kennslu með áherslu á sjálfbærni í landbúnaði en einnig að stjórnun . Fræðasvið sem til greina koma eru t.d. líffræði eða lífeðlisfræði plantna og dýra, búvísindi (búfjárrækt/jarðrækt), landbúnaðarvistfræði, landbúnaðarhagfræði og landbúnaðarverkfræði. Fleiri fræðasvið koma þó til greina.

Lektor er ætlað að byggja upp alþjóðlega viðurkenndar rannsóknir á sérsviði sínu, birta ritrýndar vísindagreinar, afla rannsóknarstyrkja og taka virkan þátt í bæði alþjóðlegum sem innlendum verkefnum og samstarfi.  Ennfremur að kenna í námskeiðum á grunn- og framhaldsstigi og leiðbeina nemendum í rannsóknaverkefnum, auk þess að taka virkan þátt í störfum deildar. Lektor hefur jafnframt tækifæri til að þróa námskeið og kennslu í grunn- og framhaldsnámi.

Menntunar- og hæfniskröfur:
• Samstarfshæfni og lipurð í mannlegum samskiptum er algjört skilyrði og ætlast er til að umsækjandi sýni fram á þessa færni í umsóknarferlinu.
• Doktorspróf í búvísindum eða skyldum greinum.
• Góð grunnþekking og reynsla af rannsóknum á sjálfbærum landbúnaði.
• Þekking á landbúnaði á norðlægum slóðum er æskileg.
• Reynsla af nýsköpun í landbúnaði er kostur. 
• Umsækjandi hafi kynnt rannsóknir sínar á viðurkenndum vettvangi og hafi skýra framtíðarsýn í þeim efnum. 
• Reynsla af kennslu og geta og vilji til þess að þróa nýjar aðferðir til þekkingarmiðlunar á fræðasviðinu.
• Æskilegt er að umsækjandi hafi átt aðild að rannsóknarverkefnum og öflun rannsóknastyrkja í samvinnu við aðra.
• Stjórnunarreynsla og íslenskukunnátta er æskileg.

 

Horft verður til þess að umsækjendur falli sem best að stefnu, aðstæðum og þörfum Auðlinda- og umhverfisdeildar.

Upphafleg ráðning verður til fimm ára í samræmi við lög um opinbera háskóla nr. 85/2008.  Að þeim tíma liðnum verður tekin ákvörðun um framhaldið.  Gert er ráð fyrir að umsækjandi hefji störf sem fyrst og eigi síðar en 1. maí 2018. Athygli er vakin á því að samkvæmt reglum Landbúnaðarháskóla Íslands er rektor heimilt að veita framgang í starf dósents eða prófessors strax við nýráðningu uppfylli viðkomandi þau skilyrði.

Um meðferð umsókna, mat á hæfi umsækjenda og ráðningu í starfið er farið eftir ákvæðum laga um opinbera háskóla nr. 85/2008 og reglna um nýráðningar og framgang akademískra starfsmanna við Landbúnaðarháskóla Íslands frá 20. september 2012.

Kennsla í grunnnámi við LbhÍ fer að jafnaði fram á íslensku í samræmi við málstefnu skólans. Ef móðurmál viðkomandi er ekki íslenska er ætlast til að hann hafi öðlast næga færni til að nota íslensku við kennslu innan þriggja ára frá því að hann hefur störf. Meginstarfsstöðvar LbhÍ eru þrjár: að Hvanneyri í Borgarfirði, á Keldnaholti í Reykjavík og að Reykjum í Ölfusi. Kennsla sú sem fellur undir umrætt starf fer fram að Hvanneyri.

Launakjör eru skv. kjarasamningum opinberra starfsmanna. Um starfskjör, réttindi og skyldur gilda að öðru leyti lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996.

Fyrir frekari upplýsingar, vinsamlegast hafið samband við Auði Magnúsdóttur, deildarforseta Auðlinda- og umhverfisdeildar í síma +433 5000 eða með tölvupósti (This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.)

Umsóknarfrestur er til 27. nóvember 2017. Umsóknir sendist til Landbúnaðarháskóla Íslands b/t Arna Garðarsdóttir Ásgarði – 311 Hvanneyri eða í tölvupósti This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.. Umsækjendur skulu láta fylgja umsókn sinni vottorð um námsferil sinn og störf, ritaskrá, skýrslu um vísindastörf og önnur störf sem þeir hafa unnið, kynningarbréf þar sem m.a. koma fram upplýsingar um samskiptahæfni umsækjanda, rannsóknaráherslur og hugmyndir um kennsluaðferðir og þróun þekkingarmiðlunar á sviðinu. 

Landbúnaðarháskóli Íslands áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum. Auglýsing getur gilt í allt að sex mánuði. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.

logo

Þekking á sviði sjálfbærrar nýtingar auðlinda, umhverfis, skipulags og matvælaframleiðslu.

LBHÍ

Hvanneyri - 311 Borgarbyggð
Sími 433-5000
lbhi@lbhi.is
Kt. 411204-3590
Rafrænir reikningar
Image

Starfsstöðvar

Flýtileiðir

Samfélagsmiðlar

Image
Image