Vel sóttur fundur um aukið virði landbúnaðarafurða

Image
Image
Hægt er að hlusta á fundinn á Facebook síðu Samtaka ungra bænda.
Image
Frambjóðendur allra flokka í NV-kjördæmi áttu fulltrúa á fundinum

Um hundrað manns mættu á opinn fund í Ásgarði á Hvanneyri þriðjudaginn 24. október sem bar yfirskriftina Aukið virði landbúnaðarafurða – Hvað ætlar Ísland að gera?. Fundurinn var skipulagður af Landbúnaðarháskóla Íslands, Matís og Samtökum ungra bænda. Fulltrúar allra níu stjórnmálaflokkanna sem bjóða fram í Norðvesturkjördæmi mættu og kynntu stuttlega framtíðarsýn flokkanna í landbúnaðarmálum auk þess að svara spurningum úr sal í lok fundar.

Einar Freyr Elínarson, formaður Samtaka ungra bænda, setti fundinn og sagðist hafa áhyggjur af mikilli byggðaröskun ef ekkert yrði gert í vanda sauðfjárbænda eins og staðan er í dag og að stjórnmálmenn geta ekki skilað auðu í þessu máli. Hann sagði tækifærin þó vera víða fyrir bændur, m.a. með stórauknum ferðamannastraumi til landsins sem opnað hefði á nýjar leiðir í sölu og þróun matvæla. Sérstaða íslenskra landbúnaðarvara er ótvíræð og neytendur eru sífellt að verða meðvitaðri um hana, mikilvægt er að standa vörð um þessa sérstöðu þegar litið er fram í tímann sagði Einar. Hann sagði íslenska bændur ekki hrædda við samkeppni en erfitt væri að keppa einungis á verðmiðanum við innflutt kjöt. 

Sæmundur Sveinsson, rektor LbhÍ, minnist í upphafi ræðu sinnar á að Hvanneyri væri búin að vera miðstöð íslensks landbúnaðar í meira en hundrað ár og þangað hefðu margir sótt sér þekkingu í nýtingu á jörðinni sér og sínum til framfærslu við matvælaframleiðslu í gegnum tíðina. Í dag eigum við vísindafólk á heimsvísu sem hefur sótt sér nám og fengið þjálfun hér á landi í sínum fræðum og vinnur í dag fyrir öflugar stofnanir á sviði landbúnaðar og matvæla. Sæmundur sagði nauðsynlegt styðja við og hlúa að þessum stofunum svo innan þeirra sé hægt að þjálfa nýtt fólk sem vinni að nýjum rannsóknum. Síðusta áratug hefur dregið gríðarlega úr fjármagni til Landbúnaðarháskólans og er óviðunandi að fræðasvið landbúnaðarins sé fjársvelt ár eftir ár, sé stefnan að hafa öflugan landbúnað á Íslandi verður að vera öflugur landbúnaðarháskóli á Íslandi, sagði Sæmundur. 

Sveinn Margeirsson, forstjóri Matís, sagði nauðsynlegt að brúa bilið á milli neytenda og verðmætasköpunar og tók sem dæmi hvernig Matís hefur unnið að því markmiði í sjávarútvegi. Síðustu tíu til fimmtán ár hefur verðmæti hvers kílós af afla í sjávarútvegi meira en tvöfaldast og hefur stofnun AVS Rannsóknarsjóðs í sjávarútvegi mikið um þá staðreynd að segja, sagði Sveinn. Rannsóknasjóðurinn var stofnaður árið 2003 en hann veitir styrki til rannsókna- og þróunarverkefna sem auka verðmæti sjávarfangs og árið eftir var Tækniþróunarsjóður stofnaður, tveir sjóðir með því markmiði að búa til meiri verðmæti. Sveinn segir að sjóður eins og AVS (Aukið verðmæti sjávarfangs) geti hjálpað landbúnaðum á svipaðan hátt og sjávarútveginum og fullyrti að hægt verði að þrefalda verðmætasköpun og arðsemi íslensks landbúnaðar á næstu fjórum árum. Til þess þarf vísindi og stofnanir, og Matís og Landbúnaðarháskólinn spila þar lykilhlutverk. Sveinn sagði að lokum að það þurfi að fjárfesta í þekkingu og að bændur, sjómenn og  fyrirtæki tengd landbúnaði og sjávarútvegi auk stjórnvalda verði að horfast í augu við það.

Framsögumenn og frambjóðendur voru ánægðir með fundinn og minntust margir á nauðsyn þess að ná til ungs fólk því það er hópurinn sem auðveltast er að kynna fyrir nýjungar. Gaman er að segja frá því að nemendur Landbúnaðarháskólans fjölmenntu á fundinn og var greinilegt að margir þeirra hafa áhyggjur af núverandi stöðu sauðfjárbænda og framtíð sinni í greininni. Eitt voru allir frambjóðendur sammála um, rannsóknir og nýsköpun eru grundvallaratriði í þeirri vinnu að auka virði afurða í landbúnaði.

Frambjóðendur sem sátu fundinn:

Guðjón S. Brjánsson frá Samfylkingu
Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir frá Sjálfstæðisflokki
Dóra Björt Guðjónsdóttir frá Pírötum
Ásmundur Einar Daðason frá Framsóknarflokki
Jón Þór Þorvaldsson frá Miðflokknum
Guðlaug Kristjánsdóttir frá Bjartri framtíð
Matthías Lýðsson frá Vinstri grænum
Magnús Þór Hafsteinsson frá Flokki fólksins

logo

Þekking á sviði sjálfbærrar nýtingar auðlinda, umhverfis, skipulags og matvælaframleiðslu.

LBHÍ

Hvanneyri - 311 Borgarbyggð
Sími 433-5000
lbhi@lbhi.is
Kt. 411204-3590
Rafrænir reikningar
Image

Starfsstöðvar

Flýtileiðir

Samfélagsmiðlar

Image
Image