Meistaravörn í Endurheimt vistkerfa – Binna Kipandula

Binna Kipandula ver meistararitgerð sína í Endurheimt vistkerfa "Aðstoð við myndun lífrænnar jarðvegsskánar við endurheimt vistkerfa" „Challenges and opportunities of Catchment Management Approach in Mitigating Land
Degradation: The case of Mkuwazi catchment, Malawi“ sem á íslensku er „Áskoranir og tækifæri í vatnasviðastjórnun við að draga úr
landeyðingu: Dæmi frá Mkuwazi vatnasviðinu í Malaví“ við deild Náttúru & Skóga við Landbúnaðarháskóla Íslands.

 
Leiðbeinendur Binna eru Dr. Jóhanna Gísladóttir og Dr. Utra Mankasingh hjá LbhÍ.
Meistaravörnin fer fram þriðjudaginn 3. júní 2025 kl. 10:30 í Sauðafelli, Keldnaholti, Árleyni 22 112 Reykjavík. Vörnin fer fram á ensku og er öllum opin. Hlekkur á vörnina er hér.
 

Ágrip

 
Landeyðing er eitt helsta umhverfisvandamál heims og hefur áhrif víða, þar á meðal í Malaví, og hefur umtalsverð áhrif á framleiðni í landbúnaði og á lífsviðurværi fólks. Ríkisstjórn Malaví, með stuðningi Alþjóðabankans, vinnur að innleiðingu vatnasviðastjórnunar til að stýra vatns- og landauðlindum á sjálfbærari hátt og sporna við landeyðingu. Vatnasviðastjórnun stuðlar að samþættingu umhverfis-, félags- og efnahagslegra þátta innan vatnasviðs með það að markmiði að tryggja sjálfbæra nýtingu lands. Markmið þessarar rannsóknar var að greina þær áskoranir og tækifæri sem tengjast innleiðingu vatnasviðastjórnunar á Mkuwazi vatnasviðinu í Malaví. Til að varpa ljósi á rannsóknaspurninguna voru haldnir viðtalshópar og einstaklingsviðtöl tekin við lykil hagaðila. Helstu áskoranir sem fram komu voru meðal annars ágallar í stjórnsýslu- og stefnumótun, fjárhags- og greiðsluerfiðleikar, takmarkanir tengdar skipulagi og tæknikunnáttu, rekstri, öryggis- og vinnuvernd sem og félagslegar og efnahagslegar hindranir sem torvelda þátttöku. Þrátt fyrir þessar áskoranir felur vatnasviðastjórnun í sér margvísleg tækifæri, svo sem efnahagslegan ávinning fyrir nærsamfélög og bætta framleiðni lands. Þátttakendur töldu byggingu svelgja (e. swale) og uppgræðslu djúpra vatnsrása (e. gully) áhrifaríkustu aðgerðirnar innan vatnasviðastjórnunar. Hins vegar þarf að efla stjórnskipulag tengt vatnasviðastjórnun á Mkuwazi vatnasviðinu, bæta fjármögnunarleiðir, auka tæknilega getu og hvetja til virkari þátttöku samfélagsins til að takast á við þær áskoranir sem um ræðir. Slíkar aðgerðir munu draga úr landeyðingu og styðja við sjálfbærara lífsviðurværi í Malaví.
 

Abstract


Land degradation is a major environmental challenge affecting many parts of the world, including Malawi, with significant impacts on agricultural productivity and livelihoods. The government of Malawi, with support from the World Bank, is implementing integrated catchment management (ICM) as a sustainable approach to manage water and land resources and to halt land degradation. Integrated Catchment Management promotes the integration of environmental, social, and economic factors within a catchment to ensure sustainable land management. The aim of this research was to identify challenges and opportunities associated with the implementation of ICM in the Mkuwazi Catchment in Malawi. To shed light on this focus group discussions and key informant interviews were conducted. The key challenges identified include governance and policy gaps, financial and payment difficulties, structural and technical limitations, logistical and administrative constraints, occupational and safety risks, and socioeconomic barriers hindering participation. Despite these challenges, ICM presents opportunities, such as economic benefits for local communities and improved land productivity. Participants considered swale construction and gully reclamation to be the most effective interventions involved in the catchment management. However, governance structures surrounding the ICM in the Mkuwazi catchment need to be strengthened, finance mechanisms improved, technical capacity enhanced, and community involvement promoted to address the challenges involved. Such measures will help reverse land degradation and support sustainable livelihoods in Malawi.
logo

Þekking á sviði sjálfbærrar nýtingar auðlinda, umhverfis, skipulags og matvælaframleiðslu.

LBHÍ

Hvanneyri - 311 Borgarbyggð
Sími 433-5000
lbhi@lbhi.is
Kt. 411204-3590
Rafrænir reikningar
Image

Starfsstöðvar

Flýtileiðir

Samfélagsmiðlar

Image
Image